Fara í efni

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar

934. fundur 07. október 2020 kl. 11:30 - 14:07 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Gísli Sigurðsson formaður
  • Stefán Vagn Stefánsson varaform.
  • Ólafur Bjarni Haraldsson aðalm.
  • Bjarni Jónsson áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Friðrik Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
  • Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjálmálasviðs
Dagskrá
Samþykkt samhljóða að taka mál númer 2010039 á dagskrá með afbrigðum.

1.Fjárhagsáætlun 2021 - 2025

Málsnúmer 2007023Vakta málsnúmer

Lögð fram gögn varðandi fjárhagsramma ársins 2021.
Byggðarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu að fjárhagsramma 2021-2025 og vísar honum til afgreiðslu sveitarstjórnar og umfjöllunar í nefndum. Byggðarráð samþykkir einnig að fyrri umræða í sveitarstjórn verði 18. nóvember n.k. og síðari umræða verði 9. desember 2020.

2.Starfshópur um aðgerðir til eflingar nýsköpunar í Skagafirði

Málsnúmer 2005008Vakta málsnúmer

Málið áður á dagskrá 932. fundar þann 23. september 2020. Sigfús Ólafur Guðmundsson sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Byggðarráð samþykkir að Sigfús Ólafur vinni áfram að verkefninu í samræmi við umræður á fundinum.

3.Jarðgöng á milli Fljóta og Siglufjarðar

Málsnúmer 2010020Vakta málsnúmer

Á undanförnum árum hefur Sveitarfélagið Skagafjörður þrýst mjög á þingmenn og Vegagerðina um hröðun undirbúnings og framkvæmda við jarðgöng á milli Fljóta og Siglufjarðar. Nú sem aldrei fyrr er lífsnauðsynlegt að göngin komist til framkvæmda því jarðsig, skriðuföll og grjóthrun hefur verið með mesta móti á undanförnum misserum eins og þeir þekkja sem aka daglega um veginn. Tíðar jarðskjálftahrinur úti fyrir Tröllaskaga eru ekki til að bæta ástandið. Það er mál manna að það sé ekki spurning um hvort heldur hvenær Siglufjarðarvegur rofnar á löngum kafla.
Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar skorar á alþingismenn og samgönguráðherra að tryggja að undirbúningi jarðganga á milli Fljóta og Siglufjarðar verði lokið sem fyrst og tryggja fjármögnun til að framkvæmdir við gerð þeirra geti hafist innan tíðar. Byggðarráð hvetur Vegagerðina jafnframt til að hafa heimamenn í Fljótum og á Siglufirði með í ráðum við greiningu á heppilegri legu ganganna.

4.Samþykktir SSNV

Málsnúmer 2009305Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf dagsett 23. september 2020 til sveitarstjórna á Norðurlandi vestra frá stjórn Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra. Þar er vakin athygli á að samkvæmt grein 8.1 í samþykktum og 14. grein þingskapa SSNV skulu tillögur til breytinga á samþykktum og þingsköpum sendar stjórn a.m.k. þremur vikum fyrir ársþing eða eigi síðar en 2. október 2020.

5.Landsmót æskulýðsfélaga þjóðkirkjunnar

Málsnúmer 2003223Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf frá Æskulýðssambandi Þjóðkirkjunnar (ÆSKÞ) dagsett 24. september 2020 þar sem sambandið tilkynnir að hætt hafi verið við að halda fyrirhugað æskulýðsmót á Sauðárkróki nú í októberlok vegna COVID-19. Óskað er eftir því að halda landsmótið á Sauðárkróki í lok október 2021 og fá styrk frá sveitarfélaginu í formi gistiaðstöðu í Árskóla, notkun íþróttahúss og sundlaugar.
Byggðarráð samþykkir að senda erindið til umsagnar félags- og tómstundanefndar og fræðslunefndar.

6.Styrkveiting til Tindastóls, meistaraflokks kvenna í knattspyrnu

Málsnúmer 2009259Vakta málsnúmer

Byggðarráð samþykkir að styrkja knattspyrnudeild Ungmennafélagsins Tindastóls um 1.700.000 kr. vegna framúrskarandi árangurs meistaraflokks kvenna þar sem liðið varð deildarmeistari í 1. deild og mun leika í efstu deild á næsta keppnistímabili. Jafnframt samþykkir byggðarráð að farið verði í uppbyggingu á stúku og viðeigandi aðstöðu við gervigrasvöll sem uppfyllir skilyrði mannvirkjanefndar KSÍ um leiki í efstu deild.
Byggðarráð óskar meistarflokki kvenna og knattspyrnudeildinni til hamingju með frábæran árangur sem og þeim fjölmörgu sem hafa komið að liðinu á undanförnum árum.

7.Aðalfundur Norðurár bs.

Málsnúmer 2010039Vakta málsnúmer

Lagt fram aðalfundarboð Norðurár bs. Fundurinn verður haldinn þriðjudaginn 13. október 2020, kl. 15.00 í Miðgarði - menningarhúsi.
Byggðarráð samþykkir að Sigfús Ingi Sigfússon, sveitarstjóri, fari með atkvæðisrétt sveitarfélagsins á fundinum.

8.Beiðni um umsögn vegna rekstrarleyfis Öggur

Málsnúmer 2009167Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf dagsett 16. september 2020 frá Matvælastofnun (MAST). Hjörtur Methusalemsson sérfræðingur fiskeldis f.h. MAST óskar eftir umsögn Sveitarfélagsins Skagafjarðar á umsókn Öggs ehf., kt. 650809-1300, að Hólum í Hjaltadal, í samræmi við 7. gr. laga nr. 71/2008, vegna nýs rekstrarleyfis fyrir 20 tonna landeldi, þ.e. seiðaeldi til áframeldis og matsfiskseldis á bleikju. MAST óskar eftir umsögn um, hvort náttúrulegar aðstæður á fyrirhuguðu starfssvæði fiskeldisstöðvarinnar eða fyrirhugaðar eldistegundir, eldisstofnar eða eldisaðferðir gefi tilefni til neikvæðra vistfræði- eða erfðafræðiáhrifa sem leitt getur af leyfisskyldri starfsemi.
Byggðarráð Skagafjarðar telur að með veitingu nýs starfsleyfis, muni starfsemin ekki gefa tilefni til neikvæðra vistfræði- eða erfðafræðiáhrifa á svæðið.

9.Samráð; Drög að frumvarpi til laga um Tækniþróunarsjóð

Málsnúmer 2009290Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 28. september 2020 þar sem atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 201/2020, "Drög að frumvarpi til laga um Tækniþróunarsjóð". Umsagnarfrestur er til og með 09.10.2020.

10.Samráð; Drög að frumvarpi til laga um opinberan stuðning við nýsköpun

Málsnúmer 2009291Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 28. september 2020 þar sem atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 202/2020, "Drög að frumvarpi til laga um opinberan stuðning við nýsköpun". Umsagnarfrestur er til og með 09.10.2020.
Með frumvarpinu er verið að breyta umgjörð í kringum opinberan stuðning við nýsköpun í landinu. Í markmiðsgrein frumvarpsins segir að markmið laganna sé að efla opinberan stuðning við nýsköpun á landinu, m.a. með „áherslu á nýsköpun á landsbyggðinni.“ Ætlunin er að ná því markmiði með því að „framlög til og áhersla á nýsköpun á landsbyggðinni verði aukin í samvinnu við sveitarfélög, landshlutasamtök, atvinnulíf og þekkingarsamfélög á staðnum.“ Enn fremur segir í greinargerðinni: „Þá er lagt upp með að settur verði á fót verkefnasjóður fyrir nýsköpun í samstarfi við landshlutasamtök sveitarfélaga og sóknaráætlanir landshlutanna. Þessi verkefnasjóður er viðbót við þau verkefni og framlög sem nú eru til staðar á vegum sóknaráætlana landshlutanna.“ Þá segir í greinargerðinni að „Unnið verði að sterkari umgjörð fyrir starfsemi stafrænna smiðja sem byggir á samvinnu atvinnu- og nýsköpunarráðuneytis, mennta- og menningarmálaráðuneytis og atvinnulífs.“
Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar fagnar markmiði frumvarpsins um eflingu opinbers stuðnings við nýsköpun með áherslu á aukin framlög til nýsköpunar á landsbyggðinni sem og áformum um sterkari umgjörð fyrir starfsemi stafrænna smiðja. Byggðarráð telur að beina eigi þeim stuðningi í farveg samvinnu við sveitarfélög og þekkingarsamfélög á hverju svæði fyrir sig og óskar eftir samtali við atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið um slíka samvinnu.

11.Samráð; Frumvarp til breytinga á áfengislögum, sala á framleiðslustað

Málsnúmer 2009292Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 28. september 2020 þar sem dómsmálaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 200/2020, "Frumvarp til breytinga á áfengislögum, sala á framleiðslustað". Umsagnarfrestur er til og með 12.10.2020.

12.Samráð; Frumvarp til laga um breytingu á umferðarlögum

Málsnúmer 2009293Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 24. september 2020 þar sem samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 198/2020, "Frumvarp til laga um breytingu á umferðarlögum". Umsagnarfrestur er til og með 08.10.2020.

13.Haustþing SSNV 2020

Málsnúmer 2007020Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf dagsett 1. október 2020 frá Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra. Vegna komandi 28. ársþings og 4. haustþings SSNV sem fram fara 23. október 2020, er sveitarstjórnum á Norðurlandi vestra bent á 1. grein starfsreglna kjörnefndar SSNV. Með tilvísun í 3. tölulið greinarinnar er athygli vakin á því að á 28. ársþingi, sem fer samhliða 4. haustþingi, skal kjósa formann stjórnar SSNV, fjóra stjórnarmenn að auki og varastjórn. Framboð til stjórnar skal hafa borist til kjörnefndar 10 dögum fyrir ársþing eða eigi síðar en 13. október 2020.

14.Ferðasmiðjan ehf. - ársreikningur 2019

Málsnúmer 2009216Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar ársreikningur Ferðasmiðjunnar ehf. fyrir árið 2019.

15.Fundagerðir Ferðasmiðjunnar 2019

Málsnúmer 1901011Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar fundargerðir Ferðasmiðjunnar ehf. á árinu 2019.

16.Fundagerðir Ferðasmiðjunnar 2020

Málsnúmer 2010019Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð Ferðasmiðjunnar ehf. frá 2. október 2020.

Fundi slitið - kl. 14:07.