Fara í efni

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar

910. fundur 15. apríl 2020 kl. 11:30 - 12:30 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Stefán Vagn Stefánsson formaður
  • Gísli Sigurðsson varaform.
  • Bjarni Jónsson aðalm.
  • Ólafur Bjarni Haraldsson áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Friðrik Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
  • Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri
  • Laufey Kristín Skúladóttir
  • Kristín Jónsdóttir. ritari
  • Helga Sigurrós Bergsdóttir ritari
Fundargerð ritaði: Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjálmálasviðs
Dagskrá
Ólafur Bjarni Haraldsson tók þátt í fundinum í gegnum fjarfundarbúnað.

1.Hugmyndir og ábendingar að aðgerðum til viðspyrnu fyrir íslenskt atvinnulíf

Málsnúmer 2003207Vakta málsnúmer

Erindið einnig rætt á fyrri fundum byggðarráðs.
Byggðarráð ræddi stöðu atvinnulífs í sveitarfélaginu og mögulegar aðgerðir.

2.Lóð númer 70 við Sauðárhlíð

Málsnúmer 2002229Vakta málsnúmer

Málið áður á dagskrá 909. fundar byggðarráðs þann 8. apríl 2020.
Byggðarráð samþykkir að ganga til viðræðna við Sauðárkróksbakarí ehf. og gagn ehf. á grundvelli tilboðs þeirra.
Byggðarráð samþykkir einnig að fela sveitarstjóra að ræða við Sigurpál Aðalsteinsson og Kristinn T. Björgvinsson um möguleika á annarri lóð sem fallið getur að þeirra hugmyndum.

3.Kjörstaðir við forsetakosningar 2020

Málsnúmer 2004047Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur frá Þjóðskrá Íslands, dagsettur 3. apríl 2020. Þann 27. júní 2020 verður gengið til forsetakosninga og hefur Þjóðskrá Íslands hafið undibúning vegna kosninganna.
Byggðarráð samþykkir að kjörstaðir verði eftirtaldir í Sveitarfélaginu Skagafirði vegna forsetakosninganna:
Félagsheimilið Skagasel, FNV bóknámshús, Varmahlíðarskóli, Félagsheimilið Árgarður, Grunnskólinn Hólum Hjaltadal, Félagsheimilið Höfðaborg, Sólgarðaskóli í Fljótum og Heilbr.stofnun Norðurlands á Sauðárkróki.

4.Orkuskipti í höfnum - beiðni um upplýsingar

Málsnúmer 2004066Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 7. apríl 2020 frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu til aðildarhafna Hafnasambands Íslands varðandi orkuskipti í höfnum. Sem liður í aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum er stefnt að orkuskiptum í höfnum og haftengdri starfsemi, þ.e. að tryggja innviðuppbyggingu sem stuðli að notkun endurnýjanlegra orkugjafa í stað jarðefnaeldsneytis. Óskað er eftir upplýsingum um verkefni í undirbúningi sem að stuðla að orkuskiptum í viðkomandi höfn á næstu árum.
Byggðarráð samþykkir að vísa erindinu til umsagnar umhverfis- og samgöngunefndar.

5.Jöfnunarsjóður sveitarfélaga - framlög 2020 endurskoðuð

Málsnúmer 2004071Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur dagsettur 7. apríl 2020 frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, þar sem kynnt er að mikil óvissa ríkir um áætlaðar tekjur Jöfnunarsjóðs á árinu 2020 verður að framkvæma nýja greiðsluáætlun vegna framlaga ársins 2020. Ljóst er að tekjur sjóðsins muni lækka nokkuð í ár miðað við fyrri spár.

Fundi slitið - kl. 12:30.