Fara í efni

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar

901. fundur 12. febrúar 2020 kl. 09:00 - 10:17 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Stefán Vagn Stefánsson formaður
  • Gísli Sigurðsson varaform.
  • Bjarni Jónsson aðalm.
  • Jóhanna Ey Harðardóttir varam. áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri
  • Kristín Jónsdóttir. ritari
  • Laufey Kristín Skúladóttir
Fundargerð ritaði: Kristín Jónsdóttir skjalastjóri
Dagskrá

1.Landsmót hestamanna 2024

Málsnúmer 2002056Vakta málsnúmer

Á fundinn mætti Skapti Steinbjörnsson frá Hestamannafélaginu Skagfirðingi til að ræða umsókn félagsins til að halda Landsmót hestamanna árið 2024 að Hólum í Hjaltadal.
Byggðarráð samþykkir að styðja við umsókn um Landsmót 2024.

2.Beiðni um endurskoðun samninga

Málsnúmer 1912063Vakta málsnúmer

Málið áður á dagskrá 894. fundar byggðarráðs þar sem lagður var fram tölvupóstur, dagsettur 9. desember 2019, frá Kristjáni Bjarna Halldórssyni, formanni Golfklúbbs Skagafjarðar,þar sem byggðarráð samþykkti að fela sveitarstjóra að bjóða formanninum á fund byggðarráðs.

Mættir eru á fundinn Kristján Bjarni Halldórsson, formaður Golfklúbbs Skagafjarðar og Kristján Jónasson gjaldkeri. Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að yfirfara samningana.

3.Ungmennasamband Skagafjarðar 110 ára

Málsnúmer 2002027Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf, dagsett 4. febrúar 2020, frá Ungmennasambandi Skagafjarðar þar sem fram kemur að í mars næstkomandi verði haldið 100. ársþing UMSS og þann 17. apríl verði félagið 110 ára. Á 100. ársþingi UMSS, áður en formleg dagskrá hefst, verður gestum og kjörfulltrúum boðið upp á mat úr héraði. Á ársþinginu mun UMSS sýna sögu félagsins frá 1910-2020 en sambandið hlaut styrk frá UMFÍ til að safna saman og koma á prent gömlum myndum. Áætlað er að að sýna á fleiri viðburðum í sveitarfélaginu á þessu afmælisári félagsins.
Fjöldi gesta á 100. ársþingi UMSS er áætlaður um 70-100 manns. Telma Knútsdóttir framkvæmdastjóri UMSS, sækir um styrk fyrir hönd stjórnar, að upphæð 150.000 - 350.000 kr, styrkupphæð miðist við fjölda gesta og staðsetningu ársþingsins.
Byggðarráð samþykkir að styrkja verkefnið um 250.000 kr.

4.Umsókn um lækkun fasteignaskatts

Málsnúmer 2002035Vakta málsnúmer

Með bréfi dagsettu 3. febrúar 2020 sækir Frímúrarastúkan Mælifell, kt. 580490-1079 um styrk til greiðslu fasteignaskatts skv. 2. mgr., 5. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995.
Byggðarráð samþykkir í ljósi fyrirliggjandi gagna og með vísan til reglna sveitarfélagsins að veita styrk sem nemur 30% af álögðum fasteignaskatti árins 2020.

5.Umsagnarbeiðni; þingsályktunartillaga um Alexandersflugvöll sem varaflugvöll

Málsnúmer 2002044Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur, dagsettur 6. febrúar 2020, frá Nefndasviði Alþingis. Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar tillögu til þingsályktunar um Alexandersflugvöll sem varaflugvöll fyrir Keflavíkur-, Reykjavíkur-, Akureyrar- og Egilsstaðaflugvelli, 130. mál.
Byggðarráð styður málið og vill árétta að Sveitarfélagið Skagafjörður hefur á undanförnum árum lagt mikla áherslu á uppbyggingu Alexandersflugvallar sem varaflugvallar vegna góðra lendingarskilyrða og landfræðilegrar legu flugvallarins. Það er óumdeild að lendingarskilyrði séu með því besta sem gerist á landinu og þeir dagar þar sem völlurinn lokar vegna veðurskilyrða eru fátíðir og slíkt myndi heyra til undantekinga með bættum vallarbúnaði. Jafnframt er ljóst að uppbygging vallarins myndi hafa veruleg jákvæð áhrif á ferðaþjónustu á Norðurlandi öllu.

6.Samráð; Tillaga til þingsályktunar um forvarnir gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni, ásamt áætlun fyrir árin 2021?2025

Málsnúmer 2002037Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur, dagsettur 5. febrúar 2020. Forsætisráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 25/2020, „Tillaga til þingsályktunar um forvarnir gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni, ásamt áætlun fyrir árin 2021-2025. “. Umsagnarfrestur er til og með 24.02.2020.

7.Jörðin Borgarey - athugasemdir við sölu

Málsnúmer 2002049Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf, dagsett 5. febrúar 2020, frá Efemíu Fanneyju Valgeirsdóttur og Agli Örlygssyni þar sem gerðar eru athugasemdir við sölu jarðarinnar Borgarey í gamla Lýtingsstaðahreppi m.a. það að byggðarráð samþykkti á fundi sínum þann 20. janúar síðastliðinn að taka kauptilboði í jörðina. Við það falli landið úr landbúnaðrnotkun og verði ekki nýtt til búvöruframleiðslu. Athugasemdir eru gerðar við lögfræðiálit sem sveitarfélagið lét vinna árið 2013 til að athuga hvort hömlur væru á sölu jarðarinnar og einnig bent á tilmæli Skipulagsstofnunar til sveitarfélagsins að flokka þyrfti landbúnaðarland til grundvallar skipulagsákvörðunum um nýtingu í samræmi við Landsskipulagsstefnu 2015-2026.

Meðfylgjandi bréfinu er kaupsamningur og afsal, þinglýst dags 24. febrúar 1975, þar hreppsnefnd Lýtingsstaðahrepps kaupir jörðina Borgarey með þeirri kvöð að land jarðarinnar verði óaðskiljanlegur hluti allra jarða í Lýtingsstaðahreppi.
Byggðarráð felur sveitarstjóra að svara erindinu í samráði við ráðið.

Fundi slitið - kl. 10:17.