Fara í efni

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar

863. fundur 10. apríl 2019 kl. 11:30 - 13:33 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Gísli Sigurðsson varaform.
  • Bjarni Jónsson aðalm.
  • Ólafur Bjarni Haraldsson áheyrnarftr.
  • Ingibjörg Huld Þórðardóttir varam.
Starfsmenn
  • Friðrik Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
  • Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá

1.Bikarkeppni HRFÍ 23 júní 2019 - Hjólreiðafélagið Drangey

Málsnúmer 1903296Vakta málsnúmer

Málið áður á dagskrá 862. fundar byggðarráðs. Forsvarsmenn Hjólreiðafélagsins Drangeyjar, Hallbjörn Björnsson og Pétur Ingi Björnsson, komu á fund ráðsins undir þessum dagskrárlið og kynntu áform sín um framkvæmd bikarkeppni HRFÍ í Skagafirði 23. júní 2019 og ósk um mögulega aðkomu sveitarfélagsins að mótshaldinu.
Byggðarráð tekur jákvætt í erindi félagsins og felur Sigfúsi Ólafi Guðmundssyni verkefnastjóra að vera félaginu innan handar með undirbúning mótshaldsins.

2.Ársreikningur 2018 - Sveitarfélagið Skagafjörður

Málsnúmer 1904081Vakta málsnúmer

Lagður fram ársreikningur Sveitarfélagsins Skagafjarðar og stofnana fyrir árið 2018. Þorsteinn Þorsteinsson lögg. endurskoðandi fór yfir og kynnti ársreikninginn fyrir fundarmönnum. Undir þessum dagskrárlið sátu Una A. Sigurðardóttir starfsmaður KPMG, Ásta Ólöf Jónsdóttir aðalbókari og sveitarstjórnarfulltrúarnir Jóhanna Ey Harðardóttir og Laufey Kristín Skúladóttir.
Byggðarráð samþykkir að vísa ársreikningnum til fyrri umræðu í sveitarstjórn.

3.Hótel Varmahlíð

Málsnúmer 1904043Vakta málsnúmer

Lagt fram tilboð frá Stefáni Gísla Haraldssyni í hlutafé sveitarfélagsins í Hótel Varmahlíð ehf. Stefán Gísli býður 1.001 kr. í 1.500.000 kr. hlut sveitarfélagsins. Engin starfsemi hefur verið hjá félaginu í mörg ár og eigið fé neikvætt.
Ólafur Bjarni Haraldsson vék fundi við afgreiðslu þessa dagskrárliðar.
Byggðarráð samþykkir að ganga að tilboði Stefáns Gísla í allt hlutafé sveitarfélagsins Hótel Varmahlíð ehf. og fellur jafnframt frá forkaupsrétti sínum.

4.Fundur um málefni þjóðlendna 7. júní

Málsnúmer 1903201Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf frá forsætisráðuneytinu, dagsett 2. apríl 2019 þar sem tilkynnt er að ráðuneytið hyggst halda fund 7. júní 2019 á Sauðárkróki um málefni þjóðlendna. Sveitarstjórn og forsvarsmönnum fjallskilanefnda er boðið á fundinn.

5.Samgöngu- og innviðaáætlun Norðurlands vestra

Málsnúmer 1904086Vakta málsnúmer

Á ársþingi SSNV sem haldið var 5. apríl 2019 var samþykkt tillaga um að vísa Samgöngu- og innviðaáætlun Norðurlands vestra til umfjöllunar í sveitarstjórnum á starfssvæðinu. Tillagan lögð fram ásamt greinargerð. Óskað er eftir að athugasemdir berist fyrir 1. maí 2019.
Byggðarráð samþykkir að vísa erindinu til umhverfis- og samgöngunefndar til umfjöllunar.

6.Drög að reglugerð um veiðar með dragnót

Málsnúmer 1904087Vakta málsnúmer

Lögð fram drög sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að reglugerð um veiðar með dragnót við Ísland.
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að senda inn umsögn í samráðsgátt þar sem ítrekuð eru fyrri mótmæli byggðarráðs við ákvörðun ráðherra um afléttingu friðunar á hluta Skagafjarðar fyrir dregnum veiðarfærum og þess krafist að tekið verði tillit til þeirra.

7.Umsagnarbeiðni Verkefni nefndar um stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu

Málsnúmer 1811232Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 4. apríl 2019 frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu þar sem ráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 111/2019 - Verkefni nefndar um stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu. Umsagnarfrestur er til og með 30.04.2019.
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að leggja fram drög að umsögn fyrir ráðið.

8.Umsagnarbeiðni frumvarp til laga um dýrasjúkdóma ofl. (innflutningur búfjárafurða)

Málsnúmer 1904058Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur frá nefndasviði Alþingis dagsettur 4. apríl 2019. Atvinnuveganefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um dýrasjúkdóma o.fl. (innflutningur búfjárafurða), 766. mál.
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að leggja fram drög að umsögn fyrir ráðið.

9.Áfangaskýrsla Flugklasans Air 66N

Málsnúmer 1904056Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar áfangaskýrsla Flugklasans Air 66N dagsett 31. mars 2019, varðandi starf klasans 8. október 2018 - 31. mars 2019.

Fundi slitið - kl. 13:33.