Fara í efni

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar

861. fundur 20. mars 2019 kl. 11:30 - 12:33 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Stefán Vagn Stefánsson formaður
  • Gísli Sigurðsson varaform.
  • Bjarni Jónsson aðalm.
  • Ólafur Bjarni Haraldsson áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Friðrik Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
  • Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá
Ólafur Bjarni Haraldsson tók þátt í fundinum símleiðis.

1.Tillaga - tímabundin lækkun og niðurfelling gatnagerðargjalda 2019

Málsnúmer 1810104Vakta málsnúmer

Byggðarráð samþykkir að beina því til sveitarstjórnar að framlengja frá og með 1. janúar 2019 samþykkt um tímabundna niðurfellingu gatnagerðargjalda af byggingum íbúðarhúsnæðis af hálfu einstaklinga og verktaka á lóðum við þegar tilbúnar götur á Sauðárkróki, Hofsósi, Varmahlíð og Steinsstöðum. Verði það gert á grundvelli sérstakrar lækkunarheimildar sem hægt er að veita skv. 6. gr. laga um gatnagerðargjöld nr. 153/2006. Lóðir sem niðurfellingin gildir um verði tilgreindar á sérstakan hátt á yfirlitskortum yfir lausar lóðir á heimasíðu sveitarfélagsins. Ofangreind samþykkt um niðurfellingu gatnagerðargjalda gildir um lóðir sem voru byggingarhæfar 1. janúar 2019.
Jafnframt beinir byggðarráð því til sveitarstjórnar að veita 50% afslátt af gatnagerðargjöldum af nýjum götum sem verða byggingarhæfar og tilbúnar til úthlutunar á árinu 2019.
Ákvæðið vari til 31. desember 2019. Ákvæðið verður ekki afturvirkt og miðað er við að byggingarleyfi hafi verið veitt innan þessara tímamarka.

2.Vinabæjarmót í Kristianstad 2019

Málsnúmer 1812118Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 18. mars 2019 frá vinabæ sveitarfélagsins, Kristianstad í Svíþjóð varðandi dagskrá vinabæjamóts sem verður haldið þar í maí n.k.
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að gera drög að svarbréfi til vinabæjatengiliða.

3.Styrkbeiðni Kvenfélagið Eining

Málsnúmer 1903100Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 11. mars 2019 frá Kvenfélaginu Einingu á Skagaströnd, þar sem félagið leitar eftir stuðningi við fjáröflunarverkefni.
Byggðarráð þakkar fyrir erindið en samþykkir að synja því.

4.Beiðni frá Útlendingastofnun - þjónustusamningur vegna umsækjenda um vernd 2019

Málsnúmer 1903121Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf frá Útlendingastofnun, dagsett 13. mars 2019 varðandi forathugun á vilja sveitarstjórnar til að gera þjónustusamning við stofnunina vegna umsækjenda um alþjóðlega vernd.
Byggðarráð hefur áður boðist til að taka á móti kvótaflóttamönnum og búa þeim framtíð í sveitarfélaginu. Hvað varðar beiðni Útlendingastofnunar telur sveitarfélagið að það hafi ekki þá innviði eða burði til að taka á móti stórum hópi umsækjenda um vernd, til viðbótar kvótaflóttamönnum. Af því leiðir, að byggðarráð getur ekki orðið við beiðninni að svo komnu máli.

5.Umsagnarbeiðni frumvarp til laga um fiskeldi

Málsnúmer 1903140Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 14. mars 2019 frá nefndasviði Alþingis. Atvinnuveganefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um fiskeldi (áhættumat erfðablöndunar, úthlutun eldissvæða, stjórnvaldssektir o.fl.), 647. mál.
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að senda inn umsögn.

6.Umsagnarbeiðni frumvarp til laga v uppbyggingar háhraða fjarskiptaneta

Málsnúmer 1903113Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur dagsettur 13. mars 2019 frá nefndasviði Alþingis. Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um ráðstafanir til hagkvæmrar uppbyggingar háhraða fjarskiptaneta, 639. mál.

7.Þakkir fyrir liðveislu við smábátaútgerð við Skagafjörð

Málsnúmer 1903174Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf dagsett 18. mars 2019 frá Drangey, smábátafélagi Skagafjarðar þar sem eftirfarandi ályktun var samþykkt samhljóða:
"Félagsfundur Drangeyjar haldinn 17. mars 2019 vill færa sveitarstjórn Skagafjarðar þakkir fyrir góða liðveislu við smábátaútgerð við Skagafjörð bæði í málum er varða byggðakvóta og dragnótaveiðar á innanverðum Skagafirði."

8.Stofnframlög Íls hækkun á hámarksbyggingarkostnaði og fleiri breytingar á reglugerð nr 555 2016

Málsnúmer 1903114Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur dagsettur 13. mars 2019 frá Íbúðalánasjóði varðandi reglugerð um breytingu á reglugerð um stofnframlög ríkis og sveitarfélaga, húsnæðisstofnanir og almennar íbúðir, nr. 555/2016, þar sem m.a. kveðið á um hækkun á hámarksbyggingarkostnaði almennra íbúða sem skilgreindur er í 12. gr. reglugerðarinnar.

9.Áætlun um tekjutap vegna áforma um frystingu framlags ríkisins til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga

Málsnúmer 1903169Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsettur 18. mars 2019 varðandi áætlun um tekjutap sveitarfélaga vegna áforma um frystingu framlags ríkisins til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga árin 2020 og 2021.

10.Framkvæmd sveitarfélaga á framsali ráðningarvalds

Málsnúmer 1903126Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur dagsettur 14. mars 2019 frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti varðandi framsal valds til ráðningar starfsmanna hjá sveitarfélögum. Vísað er til álits umboðsmanns Alþingis, mál nr. 9561/2018.

Fundi slitið - kl. 12:33.