Fara í efni

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar

798. fundur 02. nóvember 2017 kl. 10:00 - 13:10 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Stefán Vagn Stefánsson formaður
  • Sigríður Svavarsdóttir varaform.
  • Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir aðalm.
  • Bjarni Jónsson áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Ásta Björg Pálmadóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Ásta Björg Pálmadóttir sveitarstjóri
Dagskrá

1.Áfangaskýrsla flugklasans Air 66N

Málsnúmer 1710162Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar áfangaskýrsla flugklasans Air 66N sem fjallar um starfið undanfarna mánuði. Flugklasinn sendir þakkir fyrir áframhaldandi stuðning sveitarfélagsins við flugklasann næstu tvö árin.

2.Sérstakt strandveiðigjald til hafna

Málsnúmer 1710186Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf frá Fiskistofu sem greinir frá því að í sumar hafi verið innheimt sérstakt gjald af strandveiðibáðum. Gjaldið á að greiða hverri höfn í hlutfalli viðkomandi hafnar í heildarafla sem fenginn var við strandveiðar tímabilið 1.maí 2017 til 31.ágúst 2017. Sveitarfélagið Skagafjörður fær greitt kr. 93.340 vegna Hofsóshafnar og 357.720 vegna Sauðárkrókshafnar.

3.Greiðslur til sveitarfélaga vegna kostnaðar við alþingiskosningar 2017

Málsnúmer 1710195Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf frá dómsmálaráðuneyti til allra sveitarfélaga vegna greiðslu kostnaðar við alþingiskosningar 28. október 2017. Samkvæmt 123. gr. c liðar laga um kosningar til Alþingis nr. 24/2000, ber að greiða úr ríkissjóði nauðsynlegan kostnað við störf undirkjörstjórna og kjörstjórna auk kostnaðar við húsnæði til kjörfunda, kjörkassa og önnur áhöld vegna kosninganna.


4.Niðurfelling friðunar á hluta Skagafjarðar fyrir dragnótarveiðum

Málsnúmer 1711014Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur frá Bjarna Jónssyni um að fallin væri niður sú friðun sem sett var á innsta hluta Skagafjarðar fyrir veiðum með dragnót. Málið áður á dagskrá byggðarráðs 12.október s.l.

Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar vill ítreka bókun sína á fundi ráðsins þann 12.október s.l. þar sem óskað var eftir umsögn sveitarfélagsins á breytingum á takmörkunum við notkun veiðarfæra við veiðar samkvæmt krókaaflamarki sem varað hefur s.l. 7 ár á Skagafirði. Mikilvægt er viðhalda kerfi sem stuðlar að gæðum í meðförum afla og jákvæðri markaðssetningu. Breytingar á kerfinu kunna að leiða til aukinnar einsleitni í útgerð og fækkun starfa.

Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar mótmælir harðlega ákvörðun ráðherra um afléttingu friðunar á hluta Skagafjarðar fyrir dregnum veiðarfærum s.s. dragnót og leggst gegn breytingum á takmörkunum við notkun veiðarfæra við veiðar samkvæmt krókaaflamarki. Sveitarfélagið harmar að ekki hafi verið tekið tillit til umsagnar sveitarfélagsins sem send var frá sveitarfélaginu þann 13.október s.l. og ítrekað þann 31.október s.l. Byggðarráð skorar á ráðherra að endurskoða ákvörðun sína og óskar eftir fundi með ráðherra vegna málsins hið fyrsta.

5.Áætlunarflug í tilraunaskyni á milli Reykjavíkur og Sauðárkróks

Málsnúmer 1710168Vakta málsnúmer

Undir þessum lið sátu Jón Karl Ólafsson, Hjördís Þórhallsdóttir og Arnar Sigurðsson frá Ísavia, Ásgeir Örn Þorsteinsson og Hörður Guðmundsson frá Flugfélaginu Ernir, auk Svavars Atla Birgissonar og Sigfúsar Inga Sigfússonar frá Sveitarfélaginu Skagafirði. Rætt um fyrirkomulag flugs til Sauðárkróks sem hefst 1.desember n.k. og er tilraunaverkefni til 6 mánaða.

6.Rekstrarupplýsingar 2017

Málsnúmer 1704092Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar upplýsingar úr rekstri sveitarfélagsins fyrir tímabilið janúar-september 2017.

7.Kjörstaðir 2017

Málsnúmer 1710177Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur frá formanni yfirkjörstjórnar NV kjördæmis,Inga Tryggvasyni, þar sem hann ítrekar beiðni sína um að kjörstöðum í Sveitarfélaginu Skagafirði verði fækkað m.a. til að flýta fyrir talningu atkvæða.

8.Kynning á áformum Landsnets um jarðstrengslögn frá Varmahlíð til Sauðárkróks

Málsnúmer 1710173Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf frá Landsneti þar sem kynnt eru áform um jarðstrengslögn frá Varmahlíð til Sauðárkróks.

Fundi slitið - kl. 13:10.