Fara í efni

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar

780. fundur 06. apríl 2017 kl. 09:00 - 10:23 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Stefán Vagn Stefánsson formaður
  • Sigríður Svavarsdóttir varaform.
  • Bjarni Jónsson aðalm.
  • Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Friðrik Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
  • Ásta Björg Pálmadótttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá
Bjarni Jónsson (VG) tók þátt í fundinum símleiðis.
Byggðarráð samþykkti í upphafi fundar að taka á dagskrá með afbrigðum mál númer 1704043.

1.Umsókn um lækkun fasteignaskatts

Málsnúmer 1703277Vakta málsnúmer

Sjá trúnaðarbók.

2.Erindi til sveitarstjórnar - Flugklasinn Air 66N

Málsnúmer 1703386Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf dagsett 29. mars 2017 frá Markaðsstofu Norðurlands. vaðandi varðandi þátttöku sveitarfélaga í flugklasanum Air 66N árin 2018-2019. Óskað er eftir aðkomu sveitarfélagsins til að fjármagna starf verkefnisstjóra með framlagi sem nemur 300 kr. á hvern íbúa á ári í tvö ár (2018-2019).

Byggðarráð samþykkir að taka þátt í verkefninu á sömu forsendum og undanfarin ár með föstu fjárframlagi.

3.Húsnæðismál Leikfélags Sauðárkróks

Málsnúmer 1703160Vakta málsnúmer

Erindið áður á dagskrá 778. fundar byggðarráðs þann 23. mars 2017. Lagður fram tölvupóstur dagsettur 11. mars 2017 varðandi styrkbeiðni frá leikfélaginu.

Byggðarráð samþykkir að styrkja Leikfélag Sauðárkróks um 325.000 kr. vegna húsnæðiskostnaðar. Fjármagnið verður tekið af málaflokki 05.

4.Ársfundur 2017 - Stapi lífeyrissjóður

Málsnúmer 1703402Vakta málsnúmer

Lagt fram fundarboð dagsett 29. mars 2017 um ársfund Stapa lífeyrissjóðs, þann 3. maí 2017 í Skjólbrekku í Mývatnssveit.

Byggðarráð samþykkir að sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs sæki fundinn fyrir hönd sveitarfélagsins.

5.Reglur um niðurgreiðslu á daggæslu í heimahúsum og foreldragreiðslur

Málsnúmer 1703008Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að breyttum reglum um um niðurgreiðslu á daggæslu í heimahúsum og foreldragreiðslur sem samþykktar voru á 242. fundi félags- og tómstundanefndar þann 30. mars 2017 og vísað var til byggðarráðs.

Byggðarráð samþykkir framlögð drög að reglum um niðurgreiðslu á daggæslu í heimahúsum og foreldragreiðslur.

6.Gjaldskrá niðurgreiðslu á daggæslu í heimahúsum

Málsnúmer 1704043Vakta málsnúmer

Lögð fram gjaldskrá vegna niðurgreiðslu á daggæslu í heimahúsum og foreldragreiðslur sem samþykkt voru á 242. fundi félags- og tómstundanefndar þann 30. mars 2017 og vísað var til byggðarráðs.

Byggðarráð samþykkir með tveimur atkvæðum að hækka gjaldskrá vegna niðurgreiðslu á daggæslu í heimahúsum um 20% og bæta við sérstökum foreldragreiðslum ef foreldrum stendur hvorki til boða pláss hjá dagforeldri né í leikskóla. Einnig mun byggðarráð tryggja dagforeldri niðurgreiðslu sem svarar þremur börnum í 11 mánuði á ári.

Bjarni Jónsson (VG) óskar bókað að hann sitji hjá við afgreiðslu málsins.

7.Samstarfssamningur við Flugu hf

Málsnúmer 1701251Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að endurnýjuðum samningi milli Flugu ehf. og Sveitarfélagsins Skagafjarðar um afnot og stuðning sveitarfélagsins við rekstur Reiðhallarinnar Svaðastaða á Sauðárkróki. Samningstími er 1. janúar 2017 - 31. desember 2021. Árleg samningsgreiðsla er 6.600.000 kr. sem felur m.a. í sér afnot af reiðhöllinni fyrir barna- og unglingastarf auk starfsemi Iðju.

Byggðarráð samþykkir framlagðan samning við Flugu ehf.

8.Flugklasinn Air 66N - skýrsla 2016

Málsnúmer 1703385Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar skýrsla Flugklasans Air 66N vegna ársins 2016.

9.Fundagerðir 2017 - Samtök sjávarútvegs sveitarfélaga

Málsnúmer 1701006Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð 32. fundar stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga frá 30. mars 2017.

Fundi slitið - kl. 10:23.