Fara í efni

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar

774. fundur 16. febrúar 2017 kl. 09:00 - 12:15 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Stefán Vagn Stefánsson formaður
  • Sigríður Svavarsdóttir varaform.
  • Bjarni Jónsson aðalm.
  • Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir áheyrnarftr.
  • Viggó Jónsson varam.
Starfsmenn
  • Friðrik Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Fundargerð ritaði: Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá
Stefán Vagn Stefánsson (B) vék af fundi eftir setningu fundarins og Viggó Jónsson (B) kom inn á fundinn í staðinn. Sigríður Svavarsdóttir (D) tók við fundarstjórn.

1.Viðauki 1 við fjárhagsáætlun 2017

Málsnúmer 1702013Vakta málsnúmer

Stefán Vagn Stefánsson (B) vék af fundi við afgreiðslu þessa dagskrárliðar. Viggó Jónsson kom inn á fundinn í hans stað.

Lagður fram viðauki nr. 1 við fjárhagsáætlun ársins 2017. Í viðaukaunum felst hækkun skammtímakrafna um 23 milljónir króna hjá aðalsjóði vegna Mótunar ehf. og hækkun framkvæmdafjár eignasjóðs um 11,5 milljónir króna vegna endurgerðar Mælifellsréttar. Þessum breytingum verði mætt með lækkun á handbæru fé um 34,5 milljónir króna.

Byggðarráð samþykkir viðaukann með tveimur atkvæðum Sigríðar Svavarsdóttur (D) og Viggós Jónssonar (B). Bjarni Jónsson (V) situr hjá við afgeiðsluna.

Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir, áheyrnarfulltrúi (K) óskar bókað:

Ég er ekki sammála því að setja 23 milljónir króna í Mótun ehf.

2.Mótun ehf

Málsnúmer 1611295Vakta málsnúmer

Stefán Vagn Stefánsson (B) vék af fundi við afgreiðslu þessa dagskrárliðar. Viggó Jónsson (B) kom inn á fundinn í hans stað.

Lagt fram bréf frá stjórn Mótunar ehf. dagsett 23. nóvember 2016 þar sem óskað er eftir að sveitarfélagið leggi fram aukið hlutafé í fyrirtækið að upphæð 12.495.000 kr. Sveitarfélagið á 49% hlut í félaginu á móti Kaupfélagi Skagfirðinga (49%) og Skagafjarðarhraðlestinni (2%).

Byggðarráð samþykkir að hafna erindi stjórnar Mótunar ehf. um aukið hlutafé.

Byggðarráð samþykkir hins vegar með tveimur atkvæðum Sigríðar Svavarsdóttur (D) og Viggós Jónssonar (B) að veita fyrirtækinu lán allt að 23 milljónum króna til að gera upp hlut sveitarfélagsins í skuldum félagsins á meðan verið er að ganga frá sölu á eignum þess. Bjarni Jónsson (V) situr hjá við afgreiðsluna.

Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir (K) óskar bókað:

Ég er sammála því að hafna erindi um aukið hlutafé en er mótfallin því að veita Mótun ehf. 23 milljón króna lán.
Viggó Jónsson (B) vék af fundi kl. 10:02 og Stefán Vagn Stefánsson (B) tók við fundarstjórn.

3.Landstólpinn 2017

Málsnúmer 1702129Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 8. febrúar 2017 varðandi samfélagsviðurkenningu Byggðastofnunar, Landstólpann. Óskað er eftir tilnefningu um verðuga handhafa Landstólpans.

Byggðarráð frestar afgreiðslu málsins til næsta fundar.

4.Vinabæjarmót í Køge 30. maí - 2. júní 2017

Málsnúmer 1702057Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 3. febrúar 2017 frá vinabæ sveitarfélagsins, Köge í Danmörku. Boðið er til vinabæjamóts í Köge 30. maí ? 2. júní 2017.

Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að skrá þáttöku og sjá um undirbúning vegna vinabæjamótsins.

5.Samningur sveitarfélaganna við Fjölís um höfundarvarið efni

Málsnúmer 1702110Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsett 7. febrúar 2017 varðandi endurskoðun samninga við FJÖLÍS. Einnig lagt fram minnisblað starfsmanna sambandsins, dagsett 24. janúar 2017 og drög að samningi um ljósritun og hliðstæða eftirgerð í sveitarfélögum. Stjórn sambandsins bókaði á fundi sínum þann 27. janúar 2017 að hún mælti með því við sveitarfélögin að þau gangi til samninga við FJÖLÍS á grundvelli þeirra gagna sem lögð voru fram á fundinum.

Byggðarráð samþykkir að sveitarfélagið geri samning við FJÖLÍS á grundvelli þeirra gagna sem lögð voru fram á fundinum.

6.Auglýsing eftir framboðum í stjórn Lánasjóðs sveitarfélaga

Málsnúmer 1702157Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf dagsett 10. febrúar 2017 frá Lánasjóði sveitarfélaga þar sem auglýst er eftir framboðum í stjórn sjóðsins. Tilnefningar eða framboð skal berast sjóðnum í siðasta lagi kl. 12:00, 27. febrúar 2017.

7.Skíðadeild Tindastóls - beiðni um fund

Málsnúmer 1702169Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf dagsett 24. janúar 2017 frá Skíðadeild Umf. Tindastóls þar sem óskað er eftir fundi með byggðarráði til að ræða núgildandi samning milli deildarinnar og sveitarfélagsins.

Byggðarráð tekur jákvætt í erindið og óskar eftir að fulltrúar skíðadeildarinnar mæti á næsta fund byggðarráðs.

8.Fundun um fjármálastefnu, fjármálaáætlun og endurskoðun á fjármálakafla sveitarstjórnarlaga

Málsnúmer 1702180Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dagsettur 10. febrúar 2017. Boðar sambandið fulltrúa sveitarfélaga til fundar um fjármálastefnu og fjármálaáætlun sem nú er í mótun af hálfu fjármála- og efnahagsráðuneytisins í samvinnu við innanríkisráðuneyti og sambandið, á grundvelli laga um opinber fjármál nr. 123/2015. Einnig verður fjallað um skýrslu vinnuhóps um endurskoðun á fjármálakafla sveitarstjórnarlaga.

Byggðarráð samþykkir að sveitarfélagið sendi fulltrúa á ráðstefnuna.

9.Fundur um stöðu og framtíð íslenskra sveitarfélaga.

Málsnúmer 1702143Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur frá Sambandi sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, dagsettur 2. febrúar 2017, þar sem boðað er til samráðsfundar um stöðu og framtíð íslenskra sveitarfélaga, þann 21. febrúar 2017 á Blönduósi. Verkefninu, sem er á forsvari innanríkisráðuneytis, er ætlað að greina tækifæri og leiðir til að styrkja sveitarstjórnarstigið enn frekar.

Byggðarráð samþykkir að þeir sveitarstjórnarfulltrúar sem eiga kost á, mæti á fundinn.
Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir vék af fundi kl. 10:43.

10.Kjördæmavika

Málsnúmer 1702179Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 13. febrúar 2017 frá SSNV. Boðað er til fundar með alþingismönnum Norðvesturkjördæmis og sveitarstjórnarmönnum innan SSNV, fimmtudaginn 16. febrúar 2017 á Hvammstanga.

Byggðarráð samþykkir að Stefán Vagn Stefánsson (B) formaður byggðarráðs og Sigríður Svavarsdóttir (D) forseti sveitarstjórnar sæki fundinn.

11.Íþróttavöllur á Sauðárkróki - gervigras

Málsnúmer 1609323Vakta málsnúmer

Fulltrúar knattspyrnudeildar Umf. Tindastóls Bergmann Guðmundsson formaður og Ómar Bragi Stefánsson komu á fundinn til viðræðu um framkvæmd við gervigrasvöll á Sauðárkróki ásamt Indriða Þór Einarssyni sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs.

12.Fundagerðir 2017 - SSNV

Málsnúmer 1701003Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnarfundar SSNV frá 6. febrúar 2017.

13.Fundagerðir 2017 - Samtök sjávarútvegs sveitarfélaga

Málsnúmer 1701006Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga frá 3. febrúar 2017.

Fundi slitið - kl. 12:15.