Fara í efni

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar

498. fundur 18. nóvember 2009
Sveitarfélagið Skagafjörður
498. fundur byggðarráðs
haldinn í Ráðhúsi, Skr., fimmtudaginn 19. nóvember 2009
og hófst hann kl. 10:00
 
Fundinn sátu:
Þórdís Friðbjörnsdóttir, Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir, Páll Dagbjartsson, Bjarni Jónsson, Guðmundur Guðlaugsson og Margeir Friðriksson.
 
Fundargerð ritaði: Margeir Friðriksson, sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs.
 
Dagskrá:
 
1. 0911050 - Útsvarsprósenta 2010
Lögð fram tillaga um að útsvarsprósenta í Sveitarfélaginu Skagafirði verði hæsta leyfilega gildi vegna ársins 2010, nú 13,28#PR. Byggðarráð samþykkir tillöguna.
 
2. 0911068 - Lokun afgreiðslu Nýja Kaupþings banka á Hofsósi
Vegna áforma um lokun afgreiðslu Nýja Kaupþings banka á Hofsósi ályktar byggðarráð eftirfarandi.
 
#GLByggðarráð mótmælir áformum um lokun afgreiðslu bankans á Hofsósi, ekki síst í ljósi þess að engin önnur bankaafgreiðsla er á staðnum. Lýsir ráðið undrun á að gripið sé til þessara aðgerða hjá ríkisbanka stuttu áður en nýir eigendur taki við rekstri hans. Þjónusta bankans hefur haft mikla þýðingu fyrir íbúa svæðisins og bent er á að langt er í næstu bankastofnanir. Byggðarráð skorar á stjórn bankans að endurskoða þessi áform þar sem þau munu án efa leiða til fækkunar viðskiptavina og ólíklegt að þau skili bankanum þeim fjárhagslega ávinningi sem stefnt er að. Verði lokun afgreiðslu Nýja Kaupþings banka að veruleika skorar byggðarráð á aðrar bankastofnanir að opna afgreiðslu á staðnum og stuðla þannig að góðri þjónustu við íbúa þessa víðfeðma svæðis.#GL
 
3. 0911045 - Fjárhagsáætlun Menningar- og kynningarnefndar 2010
Lögð fram til kynningar fjárhagsáætlun menningar- og kynningarnefndar fyrir árið 2010.
 
4. 0911029 - Uppgjör vegna refaveiða
Lagt fram til kynningar bréf frá Umhverfisstofnun þar sem vakin er athygli á því að í frumvarpi til fjárlaga 2010 er ekki gert ráð fyrir neinum fjármunum til endurgreiðslu vegna refaveiða. Samkvæmt 4. mgr. 12.gr. laga nr. 64/1994, um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum, er endurgreiðsla kostnaðar vegna refaveiða háð því að fjármunir fáist til þess í fjárlögum.
Byggðarráð mótmælir þessari einhliða ákvörðun á lækkun framlaga til refaveiða og krefst þess að ríkið endurgreiði að lágmarki útlagðan virðisaukaskatt vegna veiðanna.
 
5. 0911030 - Málefni fatlaðra
Lagt fram til kynningar bréf frá stjórn Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) varðandi málefni fatlaðra og hagræðingartillögur vegna rekstrar á árinu 2010.
 
6. 0911056 - Yfirfærsla árið 2010
Lagt fram erindi frá félags- og tryggingamálaráðuneytinu varðandi yfirfærslu þjónustu fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga í ársbyrjun 2011.
 
7. 0911052 - Þakkir fyrir glæsilega umgjörð og góðar móttökur
Lagt fram bréf frá Ungmennafélagi Íslands þar sem fram kemur að 46. sambandsþing UMFÍ haldið 10.-11. október 2009 í Reykjanesbæ, þakkar sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar fyrir glæsilega umgjörð og góðar móttökur á 12. unglingalandsmóti UMFÍ.
 
Fleira ekki gert.
 
Fundi slitið kl. 11:41.