Fara í efni

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar

518. fundur 03. júní 2010 kl. 10:00 - 11:30 í Ráðhúsi, Skr.
Fundargerð ritaði: Helga S Bergsdóttir stjórnsýsluritari
Dagskrá

1.Fyrirspurn - Páll Dagbjartsson og Gísli Árnason

Málsnúmer 1005131Vakta málsnúmer

Lagðar fram skriflegar spurningar frá Gísla Árnasyni og Páli Dagbjartssyni varðandi m.a. ástæður þess að ekki var fylgt samþykkt sveitarstjórnar og ráðist í lagfæringar á bílastæðum við Upplýsingamiðstöð ferðamála í Varmahlíð á árinu 2008 og hvort einhver áform væru um framkvæmdir á þessu ári. Einnig var lagt fram skriflegt svar frá Jóni Erni Berndsen sviðsstjóra umhverfis- og tæknisviðs og Guðmundi Guðlaugssyni sveitarstjóra. Jón Örn Berndsen kom inn á fundinn undir þessum dagskrárlið. Skipulagsvinna á þessu svæði er komin í gang.

2.Samningur um umhverfisverkefni

Málsnúmer 1005282Vakta málsnúmer

Erindinu vísað til byggðarráðs frá 58. fundi umhverfis- og samgögnunefndar. Samningur milli Soroptimistaklúbbs Skagafjarðar og Sveitarfélagsins Skagafjarðar um umhverfisverkefni. Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir vék af fundi undir afgreiðslu málsins.

Byggðaráð samþykkir samninginn fyrir sitt leyti.

3.Sorphreinsun á Hofsósi - verksamningur

Málsnúmer 1005281Vakta málsnúmer

Erindinu vísað til byggðarráðs frá 58. fundi umhverfis- og samgögnunefndar. Samningur milli ÓK gámaþjónustu-sorphirðu ehf. og Sveitarfélagsins Skagafjarðar um sorphreinsun á Hofsósi.

Meirihluti byggðaráðs samþykkir samninginn. Páll Dagbjartsson óskar bókað að hann sitji hjá við afgreiðslu málsins.

4.Sorphreinsun í Varmahlíð - verksamningur

Málsnúmer 1005280Vakta málsnúmer

Erindinu vísað til byggðarráðs frá 58. fundi umhverfis- og samgögnunefndar. Samningur milli ÓK gámaþjónustu-sorphirðu ehf. og Sveitarfélagsins Skagafjarðar um sorphreinsun í Varmahlíð.

Meirihluti byggðaráðs samþykkir samninginn. Páll Dagbjartsson óskar bókað að hann sitji hjá við afgreiðslu málsins.

5.Sorphreinsun á Sauðárkróki - verksamningur

Málsnúmer 1005279Vakta málsnúmer

Erindinu vísað til byggðarráðs frá 58. fundi umhverfis- og samgögnunefndar. Samningur milli ÓK gámaþjónustu-sorphirðu ehf. og Sveitarfélagsins Skagafjarðar um sorphreinsun á Sauðárkróki.

Meirihluti byggðaráðs samþykkir samninginn. Páll Dagbjartsson óskar bókað að hann sitji hjá við afgreiðslu málsins.

6.Launað leyfi - umsókn Hjalti Pálsson

Málsnúmer 0901100Vakta málsnúmer

Erindinu vísað til byggðarráðs frá 44. fundi menningar- og kynningarnefndar. Umsókn Hjalta Pálssonar um ígildi launaðs rannsóknarleyfis til eins árs, sem þó yrði dreift á 2-3 ár.

Byggðarráð samþykkir erindið.

7.Umsögn um frumvarp til laga um orlof húsmæðra

Málsnúmer 1005242Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá nefndasviði Alþingis, þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um orlof húsmæðra, 77. mál. Byggðarráð gerir ekki athugasemdir við frumvarpið.

8.Umsögn um frumvarp til barnaverndarlaga

Málsnúmer 1005138Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá nefndasviði Alþingis, þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til barnaverndarlaga, 557. mál.

Byggðarráð Skagafjarðar hefur fjallað um málið og leitað álits félagsmálastjóra og fræðslustjóra sveitarfélagsins.

Almennt virðast þær breytingar sem lagðar eru til í frumvarpinu til bóta og til þess fallnar að skýra réttarstöðu barna og foreldra, og þar með að gera barnaverndarstarf skilvirkara. Sveitarfélagið vill engu að síður koma einni ábendingu og tveimur athugasemdum á framfæri.

Athygli er vakin á 2. mgr. 34. gr. frumvarpsins, sbr. b. lið, og samspili hennar við 1. mgr. 39. gr. um réttarstöðu foreldris sem ekki fer með forsjá barns. Hér er um mikilvæg nýmæli að ræða varðandi réttarstöðu barns og foreldris, þegar barnaverndarnefnd ráðstafar barni tímabundið til þess foreldris sem ekki fer með forsjá. Er þá gert ráð fyrir að um það gildi sömu reglur og eiga við um tímabundið fóstur. Í 39 gr. frumvarpsins eru skýrðar betur en nú er skyldur sveitarfélagsins við fósturforeldra, þ.m.t. fósturlaun.

Almennt er þessi grein mjög til bóta, en bent er á að ekki er sjálfgefið að foreldri, sem tekur tímabundið við umsjá barns síns, þótt á ábyrgð barnaverndarnefndar sé, þiggi fyrir það fósturlaun, eins og skilja má ákvæði umræddra greina. Þetta ætti að vera unnt að meta í hverju tilviki fyrir sig út frá hagsmunum barnsins og þörfum viðkomandi kynforeldris fyrir stuðning.

Athygli er vakin á 3. mgr. 39. gr. frumvarpsins en þar er gert ráð fyrir að lögheimilissveitarfélag fósturforeldra beri allan almennan skólakostnað fósturbarna. Fram til þessa hefur lögheimilissveitarfélag barnsins greitt hvort tveggja almennan skólakostnað, þmt. skólaakstur, og gjöld fyrir sérfræðiþjónustu. Sú breyting er lögð til að móttökusveitarfélag greiði allan almennan skólakostnað og akstur vegna fósturbarna, en að sérfræðiþjónustan verði áfram greidd af lögheimilissveitarfélagi.

Hér er í langflestum tilviku um að ræða tilfærslu á skólakostnaði frá fjölmennustu sveitarfélögunum, þaðan sem flest fósturbörn koma, til hinna fámennari dreifbýlissveitarfélaga með fámenna skóla og þar af leiðandi háan skólakostnað.

Hér getur verið um verulega íþyngjandi gjöld að ræða fyrir fámenna skóla sem móttökusveitarfélagið hefur enga möguleika að hafa áhrif á. Breytingin virðist því fela í sér augljóst ranglæti og því er mótmælt að breytingin sé nauðsynleg til að tryggja hagsmuni fósturbarns. Þeir yrðu eins vel eða betur tryggðir með því að lögin kvæðu skýrt á um skyldur þess sveitarfélags sem ber ábyrgð á fósturráðstöfuninni. Þessari breytingu er því harðlega mótmælt.

Athygli er vakin á 47. gr. og 48. gr. fumvarpsins um gjaldtöku af sveitarfélögum við ráðstöfun barna í vistúrræði, heimili eða stofnun, skv. 79. gr. bvl. Hér er um nýmæli að ræða sem ætla má að verði til verulegs útgjaldaauka fyrir sveitarfélögin

Minnt er á að ríkið tók að sér rekstur slíkra úrræða, án gjaldtöku, með samkomulagi við sveitarfélögin, sem þess í stað tóku að sér ábyrgð á rekstri akstursþjónustu fatlaðra.

Nauðsynlegt er að skoða þessi mál í þessu ljósi en að öðru leyti er tekið undir umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi þetta atriði.

9.Skagafjarðarveitur ehf - aðalfundur 2010

Málsnúmer 1006006Vakta málsnúmer

Lagt fram fundarboð Skagafjarðarveitna ehf. vegna aðalfundar fyrir árið 2009, þann 23. júní 2010. Byggðarráð samþykkir að þeir sveitarstjórnarfulltrúar eða varamenn þeirra, sem sjá sér fært að mæta, fari með atkvæðisrétt sveitarfélagsins hlutfallslega.

10.Rekstrarupplýsingar 2010 - sveitarsjóður og stofnanir

Málsnúmer 1004072Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar upplýsingar um rekstur sveitarfélagsins og stofnana þess fyrir tímabilið janúar-apríl 2010.

Rekstarniðurstaða tímabilsins er betri en fjáhagsáætlun gerir ráð fyrir.
Byggðarráð mælist til að í þeim tilvikum þar sem einstakar rekstrareiningar eru að fara framúr fjárheimildum að tekið sé á þeim vanda í tíma. Óskað er eftir skýringum frá viðkomandi sviðsstjórum þar sem um slíkt er að ræða í deildayfirlitinu.

11.Norðurá bs. - Ársreikningur 2009

Málsnúmer 1004019Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar ársreikningur Norðurár bs. fyrir árið 2009.

12.Endanleg úthlutun vegna sérþarfa fatlaðra nemenda 2010

Málsnúmer 1005218Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar tilkynning frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga um endanlega úthlutun framlags vegna sérþarfa fatlaðra nemenda í grunnskólum fjárhagsárið 2010.

13.Hvammur 145895 - Tilkynning um aðilaskipti að landi.

Málsnúmer 1005276Vakta málsnúmer

Lagðar fram til kynningar upplýsingar frá sýslumanninum á Sauðárkróki um aðilaskipti á jörðinni Hvammi, landnúmer 145895. Seljandi er Ríkissjóður Íslands og kaupandi Guðmundur Vilhelmsson.

Fundi slitið - kl. 11:30.