Fara í efni

Byggðarráð Skagafjarðar

93. fundur 17. apríl 2024 kl. 14:00 - 15:55 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Einar Eðvald Einarsson formaður
  • Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir varaform.
  • Álfhildur Leifsdóttir aðalm.
  • Sveinn Þ. Finster Úlfarsson varam. áheyrnarftr.
    Aðalmaður: Jóhanna Ey Harðardóttir
Starfsmenn
  • Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri
Dagskrá

1.Vatnstjón á tjaldsvæðinu í Varmahlíð

Málsnúmer 2404009Vakta málsnúmer

Málið áður tekið fyrir á 91. fundi byggðarráðs.
Álfhildur Leifsdóttir vék af fundi undir þessum dagskrárlið.
Til fundarins kom Halldór Gunnlaugsson frá Álfakletti sem er rekstraraðili tjaldstæða í eigu sveitarfélagsins.
Byggðarráð samþykkir með 2 atkvæðum að fela sveitarstjóra að afla frekari gagna.

2.Stjórnsýsluskoðun Skagafjarðar 2023

Málsnúmer 2404118Vakta málsnúmer

Lögð fram skýrsla KPMG frá 15. apríl 2024 varðandi stjórsýsluskoðun hjá sveitarfélaginu vegna ársins 2023.

3.Spretthópur um nýja nálgun í leikskólamálum

Málsnúmer 2402111Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni um nýjan fulltrúa starfsmanna leikskólans Birkilundar í Varmahlíð inn í spretthóp um nýja nálgun í leikskólamálum. Nýr fulltrúi í stað Evu Daggar Sigurðardóttur yrði Linda Björnsdóttir.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að skipa Lindu Björnsdóttur í hópinn.

4.Beiðni um styrk til reksturs Bjarmahlíðar

Málsnúmer 2404047Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá stjórnarformanni Bjarmahlíðar, þolendamiðstöðvar á Akureyri, dags. 3. apríl 2024, þar sem óskað er eftir styrk til reksturs miðstöðvarinnar í tilefni af 5 ára starfsafmæli samtakanna. Miðstöðin er fjármögnuð frá ári til árs með aðkomu fjárlaganefndar Alþingis og hefur ekki komist á fjárlög.
Því miður er byggðarráði ekki unnt að styrkja verkefnið á fjárhagsárinu 2024 og samþykkir byggðarráð því samhljóða að hafna erindinu.

5.Sala á Lækjarbakka 5

Málsnúmer 2401056Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur frá Fasteignasölu Sauðárkróks, dags. 12. apríl 2024, þar sem fjallað er um ástand fasteignarinnar Lækjarbakka 5, sem sveitarstjórn tók ákvörðun um sölu á, 17. janúar 2024. Í ljós hefur komið að þak bílskúrsins er í talsvert verra ástandi en hægt var að gera sér grein fyrir og hefur kaupandi farið fram á afslátt af lokagreiðslu.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að falla frá lokagreiðslu að upphæð 1. m.kr.

6.Útboð akstursþjónustu

Málsnúmer 2311026Vakta málsnúmer

Málið áður tekið fyrir á 92. fundi byggðarráðs.
Byggðarráð samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að afla enn frekari gagna.

7.Yfirferð yfir tillögur úr skýrslu HLH ráðgjafar

Málsnúmer 2403229Vakta málsnúmer

Fjallað um tillögur úr skýrslu HLH ráðgjafar. Byggðarráð samþykkir samhljóða að vinna áfram að innleiðingu tillagna úr skýrslunni og fjalla um framgang þeirra með reglubundnum hætti.

8.Þjóðlendumál; eyjar og sker

Málsnúmer 2402115Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar svarbréf frá Óbyggðanefnd til fjármála- og efnahagsráðherra, dags. 10. apríl 2024, þar sem svarað er ósk ráðherra um að Óbyggðanefnd fresti frekari málsmeðferð á svæði 12, eyjum og skerjum, og veiti ráðherra frest til að endurskoða kröfur ríkisins. Í kjölfarið verði landeigendum veittur frekari frestur til að lýsa sínum kröfum.
Í svarbréfi Óbyggðanefndar kemur fram að hún hafi þegar framlengt kröfulýsingarfrest landeigenda til 2. september 2024 og því hafi ráðherra svigrúm til að endurskoða kröfugerð ríkisins innan þess tíma. Verði þeirri endurskoðun ekki lokið innan hæfilegs tíma kemur til greina af hálfu Óbyggðanefndar að framlengja frestinn enn frekar til að tryggja að hugsanlegir gagnaðilar ríkisins hafi nægan tíma til að bregðast við endurskoðuðum kröfum ríkisins og eftir atvikum lýsa kröfum sínum fyrir Óbyggðanefnd.

Fundi slitið - kl. 15:55.