Fara í efni

Byggðarráð Skagafjarðar

43. fundur 12. apríl 2023 kl. 14:00 - 15:50 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Einar Eðvald Einarsson formaður
  • Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir varaform.
  • Álfhildur Leifsdóttir aðalm.
  • Jóhanna Ey Harðardóttir áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Friðrik Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
  • Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá
Í upphafi fundar var samþykkt samhljóða að taka mál númer 2303280 á dagskrá með afbrigðum.

1.Aðstaða á Sauðárkróksvelli

Málsnúmer 2303280Vakta málsnúmer

Málið áður á dagskrá 42. fundar byggðarráðs þann 5. apríl 2023. erindi frá framkvæmdastjóra knattspyrnudeildar Tindastóls og yfirmanni knattspyrnumála hjá félaginu þar sem óskað er eftir samstarfi við sveitarfélagið Skagafjörð um úrbætur á Sauðárkróksvelli (gervigrasvöllur), m.a. hvað varðar aðstöðu til sjónvarpsútsendinga, geymslu búnaðar og snjómoksturs á vellinum. Fulltrúar knattspyrnudeildar Tindastóls, Sunna Björk Atladóttir og Lee Ann Maginnis komu á fund ráðsins til viðræðu undir þessum dagskrárlið.
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að afla frekari gagna í samráði við knattspyrnudeildina um aðstöðu til sjónvarpsútsendinga og mögulegan kostnað.

2.Sundlaug Sauðárkróks, rennibrautir - útboð

Málsnúmer 2303261Vakta málsnúmer

Farið yfir upplýsingar og gögn varðandi rennibrautir og rennibrautarhús við Sundlaug Sauðárkróks. Ingvar Páll Ingvarsson verkefnisstjóri á veitu- og framkvæmdasviði sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Byggðarráð samþykkir að heimila sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs að bjóða út rennibrautir, rennibrautarhús og uppsetningu samkvæmt framlögðum gögnum.

3.Borgarflöt 27, húsaleigusamningur

Málsnúmer 2301223Vakta málsnúmer

Lagður fram viðauki við leigusamning, á milli sveitarfélagsins og Kaupfélags Skagfirðinga frá 17. maí 2010, um húsnæðið Borgarflöt 27, Sauðárkróki.
Byggðarráð samþykkir fyrirliggjandi viðauka með tveimur atkvæðum.

Álfhildur Leifsdóttir VG og óháð óskar bókað:
Það verður að teljast óeðlilegt að gera óuppsegjanlegan samning til þriggja ára um húsnæði sem er óhentugt til þeirrar starfsemi sem þar fer fram. Sveitarfélagið kemur til með að greiða um 30 milljónir á umræddum bindandi samningstíma í leigu til Kaupfélags Skagfirðinga fyrir afnot að Borgarflöt 27 en tæplega 100 milljónir hafa verið greiddar þar í leigu frá upphafi. VG og óháð leggja til að samningur verði áfram óbreyttur, þ.e.a.s. með sömu uppsagnarákvæðum og verið hefur, en að um leið verði uppbyggingu nýs þjónustuhúss hraðað eins og auðið er.
VG og óháð sitja hjá við afgreiðslu málsins.

Fulltrúar meirihlutans Einar E. Einarsson og Sólborg S. Borgarsdóttir leggja áherslu á að umræddur viðauki við húsaleigusamning um Borgartún 27 er skammtímalausn, á meðan unnið er að framtíðarlausn fyrir starfsemi veitu- og framkvæmdasviðs. Sú vinna er í fullum gangi og verður vonandi komin til framkvæmda eftir þrjú ár.

Jóhanna Ey Harðardóttir, fulltrúi L-listans óskar bókað:
Vinna er í gangi við framkvæmdir við húsnæði fyrir veitu- og framkvæmdasviðs. Teljum við það mikilvægt að framkvæmdinni verði hraðað eins og kostur er. Viðauki þessi við húsaleigusamning að Borgarflöt 27 er óuppsegjanlegur til 3 ára, fulltrúar Byggðalista styðja ekki viðaukann eins og hann liggur fyrir.

4.Lóð 25 á Nöfum

Málsnúmer 2304033Vakta málsnúmer

Byggðarráð samþykkir að auglýsa Lóð 25 á Nöfum lausa til umsóknar tímabundið til 31. desember 2024.

5.Aðalfundur Veiðifélags Skagafjarðar - Svartárdeild 2023

Málsnúmer 2304044Vakta málsnúmer

Lagt fram aðalfundarboð Svartárdeildar Veiðifélags Skagafjarðar þann 22. apríl 2023.
Byggðarráð samþykkir að Kári Gunnarsson umhverfis- og landbúnaðarfulltrúi sveitarfélagsins fari með atkvæðisrétt sveitarfélagsins á fundinum.

6.Styrktarsjóður EBÍ 2023

Málsnúmer 2304034Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf dagsett 4. apríl 2023 frá Eignarhaldsfélaginu Brunabótafélag Íslands varðandi styrktarsjóð EBÍ 2023. Vakin er athygli á að aðildarsveitarfélögum EBÍ er heimilt að senda inn umsókn í sjóðinn sem er vegna sérstakra framfaraverkefna á vegum sveitarfélaganna, s.s. sérstakar athuganir eða rannsóknir á ýmsum þróunarþáttum í atvinnulífi, samgöngum, fræðslu- og menningarmálum, en ekki vegna almennra rekstrarverkefna þeirra. Umsóknarfrestur er til 30. apríl 2023.
Byggðarráð samþykkir að fela Sigfúsi Ólafi Guðmundssyni verkefnastjóra að undirbúa umsókn í sjóðinn til uppsetningar á fræðsluskiltum um Verndarsvæði í byggð á Sauðárkróki og Hofsósi.

7.Víðilundur 17 - Umsagnarbeiðni vegna rekstrarleyfis

Málsnúmer 2304030Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 3. apríl 2023 frá embætti sýslumannsins á Norðurlandi vestra, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Dags Þórs Baldvinssonar fyrir hönd Víðiholt 560 ehf., kt. 510422-2870, um leyfi til að reka gististað í flokki II að Víðilundi 17, 560 Varmahlíð. H-Frístundahús.
Byggðarráð samþykkir fyrir sitt leyti að rekstrarleyfið verði veitt og taki til átta gesta að hámarki í einu.

8.Ráðstefna Almannavarna 27. apríl 2023

Málsnúmer 2302022Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur dagsettur 4. apríl 2023 frá Almannavörnum. Tilkynnt er um að fyrirhuguð ráðstefna Almannavarna - Hvers vegna erum við öll almannavarnir?, þann 27. apríl 2023 verði frestað fram á næsta haust.

9.Náttúruvá - hættumat og vöktun, boð á kynningu

Málsnúmer 2304035Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur dagsettur 4. apríl 2023 frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti þar sem boðið er til kynningar á skýrslu starfshóps um stöðumat og áskoranir varðandi mat og endurmótun á tilhögun hættumats og vöktunar vegna náttúruvár. Starfshópurinn var skipaður í kjölfar þingsályktunar sem samþykkt var á Alþingi í mars 2021. Hópurinn hefur skilað Guðlaugi Þór Þórðarsyni umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra skýrslu sinni og verða niðurstöður hennar kynntar á fundi sem haldinn verður í Kaldalónssalnum í Hörpu fimmtudaginn 13. apríl 2023, kl. 10:00.

Fundi slitið - kl. 15:50.