Fara í efni

Byggðarráð Skagafjarðar

41. fundur 29. mars 2023 kl. 13:00 - 14:59 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Einar Eðvald Einarsson formaður
  • Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir varaform.
  • Álfhildur Leifsdóttir aðalm.
  • Jóhanna Ey Harðardóttir áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Friðrik Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
  • Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá

1.Umsókn um leyfi fyrir rekstri á stöðvalausri deilileigu fyrir rafskútur á Sauðárkróki

Málsnúmer 2303124Vakta málsnúmer

Málið áður á dagskrá 40. fundar byggðarráðs, þann 22. mars 2023. Lagt fram ódagsett erindi sem barst 10. mars 2023 frá Þór Brynjarssyni ehf. og Hopp. Óskað er eftir að gerður verði þjónustusamningur milli Skagafjarðar og sérleyfishafa Þór Brynjarsson ehf. um leyfi til reksturs og þróunar á deilileigu fyrir rafskútur á Sauðárkróki. Ágúst Þór Brynjarsson og Rúnar Þór Brynjarsson sérleyfishafar Hopp í Skagafirði tóku þátt í fundinum ásamt Eiríki Rafni Rafnssyni fulltrúa Hopp, undir þessum dagskrárlið í gegnum fjarfundabúnað.
Byggðarráð tekur jákvætt í erindið og felur sveitarstjóra að útfæra þjónustusamning í samstarfi við umsækjendur og leggja fyrir byggðarráð.

2.Sundlaug Sauðárkróks, áfangi 2, múrverk útboð 2023

Málsnúmer 2303253Vakta málsnúmer

Lögð fram verklýsing og útboðslýsing vegna áfanga 2 við Sundlaug Sauðárkróks, múrverk og flísalagnir. Steinn Leó Sveinsson sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Byggðarráð samþykkir að fela sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs að bjóða verkið út í samræmi við fyrirliggjandi gögn.

3.Sundlaug Sauðárkróks, skýli yfir vinnusvæði

Málsnúmer 2303261Vakta málsnúmer

Lögð fram útboðsgögn vegna byggingar bráðabirgðaskýlis yfir vinnusvæði við Sundlaug Sauðárkróks, vegna vinnu við múrverk og flísalagnir. Steinn Leó Sveinsson sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Byggðarráð samþykkir að fela sviðsstjóra veitu- og framkvæmdasviðs að bjóða út byggingu bráðabirgðaskýlis yfir vinnusvæði við Sundlaug Sauðárkróks vegna vinnu við múrverk og flísalagnir.

4.Varmahlíð - VH-03, ný dæla, frágangur umhverfis og yfirfallslögn

Málsnúmer 2303260Vakta málsnúmer

Lögð fram kostnaðaráætlun fyrir virkjun á holu VH-03 við Norðurbrún í Varmahlíð. Steinn Leó Sveinsson sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið.

5.Ferðaþjónusta í Skagafirði

Málsnúmer 2303262Vakta málsnúmer

Lagt fram ódagsett bréf frá Kaupfélagi Skagfirðinga, móttekið 27. mars 2023, þar sem fyrirtækið lýsir áhuga á að standa að ráðstefnu um „Ferðaþjónustu í Skagafirði“ áskoranir og tækifæri, í samstarfi KS og sveitarfélagsins.
Byggðarráð tekur jákvætt í erindið og samþykkir að vísa því áfram til afgreiðslu atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar.

6.Svæðisáætlun sveitarfélaga

Málsnúmer 2111190Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að Svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs á Norðurlandi, til kynningar 17. febrúar 2023.
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að senda inn framlagðar athugasemdir við svæðisáætlunina til SSNV.

7.Aðalfundur Norðlenskrar orku ehf.

Málsnúmer 2303218Vakta málsnúmer

Lagt fram aðalfundarboð Norðlenskrar orku ehf. þann 7. apríl 2023 á Sauðárkróki.
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að kanna með sölu á hlutafé sveitarfélagsins og fara með atkvæðisrétt sveitarfélagsins á aðalfundinum.

8.Ósk um tilnefningu í stafrænt ráð Norðurlands vestra

Málsnúmer 2303203Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 15. mars 2023 frá Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, þar sem óskað er eftir tilnefningu fulltrúa sveitarfélagsins í Stafrænt ráð landshlutans.
Byggðarráð samþykkir að Sigfús Ólafur Guðmundsson verkefnastjóri verði fulltrúi Skagafjarðar í ráðinu.

9.Könnun um innleiðingu hringrásarhagkerfis og ósk um þátttökusveitarfélög í BÞHE innleiðingu

Málsnúmer 2303242Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 22. mars 2023 frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga varðandi könnun um innleiðingu hringrásarhagkerfis og ósk um þátttökusveitarfélög í BÞHE (borgað þegar hent er) innleiðingu.
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að óska eftir því að fá að taka þátt í BÞHE innleiðingu.

10.Tillaga kjörnefndar SÍS að fulltrúa í stjórn

Málsnúmer 2303255Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf, dagsett 23. mars 2023, til allra landsþingsfulltrúa og sveitarfélga frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga varðandi tillögu kjörnefndar að fulltrúa í stjórn sambandsins.

Fundi slitið - kl. 14:59.