Fara í efni

Byggðarráð Skagafjarðar

34. fundur 09. febrúar 2023 kl. 14:00 - 16:00 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Einar Eðvald Einarsson formaður
  • Sólborg Sigurrós Borgarsdóttir varaform.
  • Álfhildur Leifsdóttir aðalm.
  • Jóhanna Ey Harðardóttir áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Friðrik Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
  • Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá
Sigfús Ingi Sigfússon sveitartjóri tók þátt í fundinum í gegnum fjarfundabúnað.

1.Rekstur félagsheimilisins Bifrastar

Málsnúmer 2301179Vakta málsnúmer

Erindið áður á dagskrá 33. fundar byggðarráðs þann 1. febrúar 2023. Erindinu vísað til byggðarráðs frá 8. fundi atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar þann 24. janúar 2023. Lagt fram bréf dagsett 18. janúar 2023 frá forsvarsmanni Króksbíós ehf. þar sem óskað er eftir fundi með atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd sveitarfélagsins vegna seinkunar á framkvæmdum við Bifröst og fjárhagslegs tjóns sem fyrirtækið hefur orðið fyrir vegna þessa. Sigurbjörn Björnsson framkvæmdastjóri Króksbíós ehf. kom á fundinn til viðræðu.
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra fá frekari gögn frá Króksbíó ehf. og málið verður tekið aftur fyrir á næsta fundi ráðsins.

2.Samningur um stofnframlag á grundvelli laga um almennar íbúðir

Málsnúmer 2012076Vakta málsnúmer

Farið yfir samning um stofnframlag á grundvelli laga um almennar íbúðir, á milli sveitarfélagsins og Bæjartúns íbúðafélags hses. Arnór Halldórsson hrl. tók þátt í fundinum undir þessum dagskrárlið í gegnum fjarfundabúnað.
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra og lögmanni að skrifa Bæjartúni hses. bréf í samræmi við viðræður á fundinum.
Sólborg Borgarsdóttir vék af fundi undir afgreiðslu þessa dagskrárliðar og Guðlaugur Skúlason kom inn í hennar stað. Vék hann síðan af fundi.

3.Búfjáreigendur í Skagahólfi - vegna mögulegrar girðingar meðfram Þverárfjallsvegi

Málsnúmer 2302046Vakta málsnúmer

Lagt fram ódagsett bréf móttekið 6. febrúar 2023, til sveitarstjórna í Skagabyggð, Skagafirði og Húnabyggð frá búfjáreigendum er sóttu fund búfjáreigenda í Skagahólfi þann 2. febrúar 2023. Eftirfarandi bókun var samþykkt á framangreindum fundi: "Fundur búfjáreigenda í Skagahólfi skorar á sveitarstjórnir Skagabyggðar, Húnabyggðar og Skagafjarðar að beita sér af krafti fyrir því að fá Vegagerðina til að girða af Þverárfjallsveginn, beggja vegna, frá Skagastrandarvegi að Sauðárkróki. Með því móti yrði komið í veg fyrir alvarleg bílslys og tjón á búfénaði. Girðingin þarf að vera fjárheld netgirðing með gaddavír undir og yfir og viðhald hennar tryggt. Gríðarleg umferð er um veginn og á honum hafa orðið tíð slys, þegar keryrt hefur verið á búfé. Alvarlegt slys varð á veginum sumarið 2022, þegar fólksbíl var ekið á tvö hross. Hrossin drápust og mikið lán var að ekki yrðu alvarleg slys á fólki."
Byggðarráð tekur jákvætt í erindið og felur sveitarstjóra að hafa samband við framkvæmdastjóra Skagabyggðar og Húnabyggðar um nálgun málsins gagnvart Vegagerðinni.

4.Ljósleiðaraheimtaug í íbúðir sveitarfélagsins á Sauðárkróki

Málsnúmer 2301192Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 20. janúar 2023 frá veitu- og framkvæmdasviði varðandi ljósleiðaratengingar í 31 íbúð í eigu félagsíbúða sveitarfélagsins.
Byggðarráð samþykkir að heimila að ljósleiðari verði tengdur við fjölbýlishúsin við Skógargötu 2 og Víðimýri 4-10, þannig að íbúar geti tengst ljósleiðaranum kjósi þeir svo.

5.Samráð; Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 116 2006 um stjórn fiskveiða (svæðaskipting strandveiða)

Málsnúmer 2302012Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur dagsettur 1. febrúar 2023 þar sem matvælaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 22/2023, "Frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða (svæðaskipting strandveiða)". Umsagnarfrestur er til og með 15.02.2023.

6.Ráðstefna Almannavarna 27. apríl 2023

Málsnúmer 2302022Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur dagsettur 2. febrúar 2023 frá Almannavörnum þar sem kynnt er að árleg ráðstefna Almannavarna verður haldin á Hilton Reykjavík Nordica fimmtudaginn 27. apríl n.k.

Fundi slitið - kl. 16:00.