Fara í efni

Byggðarráð Skagafjarðar

29. fundur 04. janúar 2023 kl. 14:00 - 16:47 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Einar Eðvald Einarsson formaður
  • Gísli Sigurðsson varaform.
  • Álfhildur Leifsdóttir aðalm.
  • Jóhanna Ey Harðardóttir áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Friðrik Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
  • Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá

1.Aðstaða fyrir Siglingaklúbbinn Drangey

Málsnúmer 2210294Vakta málsnúmer

Á fund byggðarráðs komu forráðamenn Siglingaklúbbsins Drangeyjar, Kári H. Árnason og Hallbjörn Björnsson til viðræðu um aðstöðu klúbbsins til framtíðar.
Byggðarráð samþykkir að fela sveitarstjóra að gera drög að samningi í samræmi við það sem rætt var á fundinum og senda til forsvarsmanna Siglingaklúbbsins Drangeyjar.

2.Framkvæmdir og viðhald 2022

Málsnúmer 2301013Vakta málsnúmer

Steinn Leó Sveinsson, sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs kom til fundarins og fór yfir framkvæmdir og viðhald á árinu 2022.

3.Afskriftarbeiðnir 2022

Málsnúmer 2203011Vakta málsnúmer

Lögð fram afskriftarbeiðni nr. 202212210826524, dagsett 21.12. 2022, frá sýslumannsembættinu á Norðurlandi vestra. Óskað er eftir afskrift á fyrndum þing- og sveitarsjóðsgjöldum að höfuðstólsfjárhæð 51.591 kr. og 24.069 kr. að auki vegna dráttarvaxta. Samtals 75.660 kr.
Byggðarráð samþykkir að afskrifa framlagða skattkröfu.

4.Samráð; Grænbók um sveitarstjórnarmál

Málsnúmer 2211287Vakta málsnúmer

Málið áður á 24. fundi byggðarráðs þann 30. nóvember 2022. Lagður fram tölvupóstur dagsettur 25. nóvember 2022 þar sem innviðaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 229/2022, "Grænbók um sveitarstjórnarmál". Framlengdur umsagnarfrestur er til og með 04.01.2023.
Byggðarráð Skagafjarðar fagnar grænbók um sveitarstjórnarmál þar sem teknar eru saman upplýsingar um stöðu íslenskra sveitarfélaga og ráðist í samstillingu á stefnumótun ríkis og sveitarfélaga með heildarhagsmuni sveitarstjórnarstigsins í huga. Byggðarráð er sammála þeirri hugmyndafræði sem birtist í grænbókinni um að samhæfa þurfi stefnur og áætlanir ríkisins hvað byggðaáætlun, samgönguáætlun, landsskipulagsstefnu, húsnæðisstefnu og stefnu í sveitarstjórnarmálum varðar. Með slíkri sameiginlegri framtíðarsýn og meginmarkmiðum í framangreindum stefnum ætti að vera unnt að ná sem bestum árangri í málaflokkunum.
Byggðarráð Skagafjarðar tekur einnig undir það sem kemur fram í grænbókinni að fjármál séu eitt brýnasta úrlausnarefni ríkis og sveitarfélaga um þessar mundir enda hafa skyldur og ábyrgð á opinberri þjónustu í auknum mæli flust frá ríki til sveitarfélaga án þess að fullnægjandi tekjustofnar hafi fylgt með. Nauðsynlegt er að styrkja og fjölga tekjustofnum sveitarfélaga til að tryggja fjárhagslega sjálfbærni þeirra.
Byggðarráð Skagafjarðar áréttar jafnframt að skilningur þess á búsetufrelsi, eins og það birtist í grænbókinni, tekur ekki til breytinga á lögum um takmarkanir á heimildum til fastrar búsetu og lögheimilis í frístundabyggðum.
Byggðarráð Skagafjarðar tekur að öðru leyti undir umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 12. desember 2022 um málið.

5.Samráð; Frumvarp til laga um breytingu á lögum um Orkusjóð

Málsnúmer 2212144Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur dagsettur 16. desember 2022 þar sem umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 250/2022, "Frumvarp til laga um breytingu á lögum um Orkusjóð". Umsagnarfrestur er til og með 10.01.2023.

6.Samráð; Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um loftslagsmál (styrking stjórnsýslu loftslagsmála)

Málsnúmer 2212193Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur dagsettur 22. desember 2022 þar sem umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 255/2022, "Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um loftslagsmál (styrking stjórnsýslu loftslagsmála)". Umsagnarfrestur er til og með 16.01.2023.

Fundi slitið - kl. 16:47.