Fara í efni

Byggðarráð Skagafjarðar

17. fundur 10. október 2022 kl. 10:00 - 11:30 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Einar Eðvald Einarsson formaður
  • Gísli Sigurðsson varaform.
  • Álfhildur Leifsdóttir aðalm.
  • Jóhanna Ey Harðardóttir áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Friðrik Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
  • Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Margeir Friðriksson sviðsstjóri stjórnsýslu- og fjármálasviðs
Dagskrá

1.Beiðni um fjárhagsstuðning um kaup á nýju björgunarskipi

Málsnúmer 2209243Vakta málsnúmer

Málið áður á dagskrá 15. fundar byggðarráðs þann 28. september. Lagt fram bréf dagsett 19. september 2022 frá Björgunarbátasjóði Norðurlands varðandi ósk um fjárhagsstuðning við kaup á nýju björgunarskipi. Kolbeinn Óttarsson Proppé og Gísli Ingimundarson mættu á fundinn fyrir hönd Björgunarbátasjóðs Norðurlands og kynntu verkefnið.

2.Endurgreiðsla reiknings vegna framkvæmda við reiðhöllina Svaðastaði

Málsnúmer 2209355Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur dagsettur 30. september 2022 frá Árna Gunnarssyni f.v. stjórnarformanni Flugu ehf., varðandi kostnað sem félagið stofnaði til við Tjarnarbæ og reiðhöllina Svaðastaði að fjárhæð 570.000 kr. m. vsk.
Byggðarráð samþykkir að greiða reikning frá Flugu ehf. vegna þessa verks sem unnið var meðal annars á lóð sveitarfélagsins. Byggðarráð minnir á mikilvægi þess að ekki sé stofnað til útgjalda án fyrirliggjandi heimilda.

3.Samþykkt um byggðamerki Skagafjarðar

Málsnúmer 2208236Vakta málsnúmer

Lögð fram samþykkt um byggðamerki sveitarfélagsins Skagafjarðar.
Byggðarráð staðfestir samþykktina og samþykkir að vísa samþykktinni til afgreiðslu sveitarstjórnar.

4.Samráð; Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða (afnám tegundatilfærslu)

Málsnúmer 2210035Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur dagsettur 4. október 2022 þar sem matvælaráðuneytið kynnir til samráðs mál nr. 184/2022, "Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða (afnám tegundatilfærslu í deilistofnum botnfisks, gullkarfa og grálúðu)". Umsagnarfrestur er til og með 19.10.2022.

Fundi slitið - kl. 11:30.