Fara í efni

Atvinnu- og ferðamálanefnd

07. mars 2007
Atvinnu- og ferðamálanefnd Skagafjarðar
Fundur  – 07.03. 2007

Atvinnu- og ferðamálanefnd Skagafjarðar, fundur í Ráðhúsinu á Sauðárkróki, miðvikudaginn 07.03.2007, kl. 13:00.

Fundinn sátu Snorri Styrkársson, Gunnar Bragi Sveinsson, Gísli Sigurðsson og Áskell Heiðar Ásgeirsson sviðsstjóri sem ritaði fundargerð. 


DAGSKRÁ:
1)      Umsóknir um starf verkefnisstjóra í atvinnumálum
2)      Samningur við MFN
3)      Erindi frá Byggðarráði
4)      Önnur mál
 
AFGREIÐSLUR:
1)      Umsóknir um starf verkefnisstjóra í atvinnumálum
Lagðar fram umsóknir um starf verkefnisstjóra í atvinnumálum.  Sviðsstjóra falið að boða valda umsækjendur til viðtals.
 
2)      Samningur við MFN
Þjónustusamningur milli Markaðsskrifstofu ferðamála á Norðurlandi og Sveitarfélagsins Skagafjarðar sem gildir frá 1. janúar 2007-31.desember 2009.  Nefndin samþykkir samninginn og ákveður að vísa honum til byggðarráðs.  Kostnaður við samninginn á árinu 2007 verður 2.041.500 sem færist af lið 13090.
 
3)      Erindi frá Byggðarráði
Umsókn um land – Á fundi Byggðarráðs 27. febrúar var lagt fram bréf Skúla Þórs Bragasonar, dagsett 22. febrúar 2007, þar sem hann sækir um u.þ.b. 10 ha. land undir ferðaþjónustu fyrir ofan Sauðárkrók, í Skógarhlíð. Byggðarráð vísaði  erindinu til umsagnar skipulags- og bygginganefndar, atvinnu- og ferðamálanefndar og umhverfis- og samgöngunefndar og óskaði eftir nánari upplýsingum um fjármögnun og viðskiptaáætlun frá Skúla Þór Bragasyni.
Atvinnu- og ferðamálanefnd lýst ágætlega á hugmyndina og tekur undir það með byggðarráði að nánari upplýsingar vanti varðandi framkvæmda- og rekstraráætlun frá umsækjanda.
 
4)      Önnur mál
 
 
 
Fundargerð lesin upp og samþykkt.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 14:30