Fara í efni

Atvinnu- og ferðamálanefnd

30. janúar 2007
Atvinnu- og ferðamálanefnd Skagafjarðar
Fundur  – 30.01. 2007

Atvinnu- og ferðamálanefnd Skagafjarðar, fundur í Ráðhúsinu á Sauðárkróki, þriðjudaginn 30.01.2007, kl. 12:30.

Fundinn sátu Snorri Styrkársson, Gunnar Bragi Sveinsson, Bjarni Egilsson og Áskell Heiðar Ásgeirsson sviðsstjóri sem ritaði fundargerð. 


DAGSKRÁ:

1)      Atvinnuþróunarmál – samstarf við Skagafjarðarhraðlestina
2)      Vísindagarðar á Sauðárkróki
3)      Önnur mál
 
AFGREIÐSLUR:
1)      Atvinnuþróunarmál – samstarf við Skagafjarðarhraðlestina
Gísli Sigurðsson frá Skagafjarðarhraðlestinni komu til fundar og ræddu fyrirhugað samstarf Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Skagafjarðar-hraðlestarinnar.
 
2)      Vísindagarðar á Sauðárkróki
Skúli Skúlason rektor Hólaskóla og Jón Eðvald Friðriksson framkvæmdastjóri FISK Seafood komu til fundar og kynnu hugmyndir um uppbyggingu Vísindagarða á Sauðárkróki.
 
3)      Önnur mál
 
Fundargerð lesin upp og samþykkt.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 14:00