Fara í efni

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd

16. fundur 31. október 2023 kl. 14:00 - 16:00 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Ragnar Helgason formaður
  • Eyrún Sævarsdóttir aðalm.
  • Elínborg Erla Ásgeirsdóttir áheyrnarftr.
  • Álfhildur Leifsdóttir
Starfsmenn
  • Sigfús Ólafur Guðmundsson verkefnastjóri
  • Heba Guðmundsdóttir verkefnastjóri
Fundargerð ritaði: Sigfús Ólafur Guðmundsson verkefnastjóri
Dagskrá

1.Gjaldskrá Héraðsbókasafn Skagfirðinga 2024

Málsnúmer 2310024Vakta málsnúmer

Tekin fyrir gjaldskrá Héraðsbókasafns Skagfirðinga fyrir 2024. Atvinnu- menningar- og kynningarnefnd samþykkir fyrirliggjandi gjaldskrá sem hljóðar upp á 4,9% hækkun frá fyrra ári og vísar nefndin henni til byggðaráðs.

2.Gjaldskrá Héraðsskjalasafn Skagfirðinga 2024

Málsnúmer 2310023Vakta málsnúmer

Tekin fyrir gjaldskrá Héraðsskjalasafns Skagfirðinga fyrir 2024. Atvinnu- menningar- og kynningarnefnd samþykkir fyrirliggjandi gjaldskrá sem hljóðar upp á 4,9% hækkun frá fyrra ári. Nefndin vísar gjaldskránni til byggðaráðs til samþykktar.

3.Gjaldskrá Listasafn Skagfirðinga 2024

Málsnúmer 2310025Vakta málsnúmer

Tekin fyrir gjaldskrá Listasafns Skagfirðinga fyrir 2024. Atvinnu- menningar- og kynningarnefnd samþykkir fyrirliggjandi gjaldskrá sem hljóðar upp á 4,9% hækkun frá fyrra ári og vísar nefndin henni til byggðaráðs.

4.Skemmtiferðaskip - Ráðstefnur 2023

Málsnúmer 2310253Vakta málsnúmer

Heba Guðmundsdóttir, verkefnastjóri í atvinnu-, menningar- og kynningarmálum hjá Skagafirði kynnti samantekt frá tveimur ráðstefnum um skemmtiferðaskip sem fulltrúar sveitarfélagsins tóku þátt í nú í haust. Ráðstefnurnar eru mikilvægur þáttur í að kynna Skagafjörð sem áfangastað fyrir skemmtiferðaskip. Næsta sumar eru 13 skemmtiferðaskipakomur skráðar á Sauðárkróki.

5.Flugklasinn Air 66N - skýrsla

Málsnúmer 2310269Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar skýrsla um starfsemi Flugklasans Air66N fyrir tímabilið 1.maí - 25. október 2023.

6.Stefnumótun í atvinnumálum

Málsnúmer 2310285Vakta málsnúmer

Málið áður á dagskrá á 14 fundi nefndarinnar. Magnús Barðdal verkefnastjóri fjárfestinga á SSNV sat á fundinn ásamt sveitarstjórn Skagafjarðar. Magnús Barðdal kynnti niðurstöður frá síðstu vinnustofu og stýrði umræðum um stefnumótun í atvinnumálum Skagafjarðar.

Fundi slitið - kl. 16:00.