Fara í efni

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd

6. fundur 24. nóvember 2022 kl. 16:30 - 17:40 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Ragnar Helgason formaður
  • Sigurður Bjarni Rafnsson varaform.
  • Ólína Björk Hjartardóttir varam.
    Aðalmaður: Auður Björk Birgisdóttir
  • Elínborg Erla Ásgeirsdóttir áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Sigfús Ólafur Guðmundsson verkefnastjóri
  • Heba Guðmundsdóttir verkefnastjóri
Fundargerð ritaði: Sigfús Ólafur Guðmundsson verkefnastjóri
Dagskrá

1.Vefstefna Skagafjarðar

Málsnúmer 2208268Vakta málsnúmer

Samþykktir fyrir vefstefnu Skagafjarðar. Reglurnar eru uppfærðar með tilliti til sameiningar sveitarfélaganna í Skagafirði.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til byggðaráðs.

2.Fjárhagsáætlun 2023 - málaflokkur 05 - Menningarmál

Málsnúmer 2210237Vakta málsnúmer

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir framlagða fjárhagsáætlun 2023 og vísar henni til seinni umræðu í byggðarráði og sveitarstjórn.

3.Fjárhagsáætlun 2023 - málaflokkur 13 - Atvinnu- og kynningarmál

Málsnúmer 2210236Vakta málsnúmer

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir framlagða fjárhagsáætlun 2023 og vísar henni til seinni umræðu í byggðarráði og sveitarstjórn.

4.Samráð; Drög að Rannsóknaráætlun 2023-2025 um rannsóknir og gagnaöflun í ferðaþjónustu

Málsnúmer 2211131Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur dagsettur 9. nóvember 2022 frá Menningar- og viðskiptaráðuneytinu þar sem kynnt er samráð um mál nr. 214/2022, "Drög að Rannsóknaráætlun 2023-2025 um rannsóknir og gagnaöflun í ferðaþjónustu".

5.Samráð; Frumvarp til laga um breytingu á safnalögum, lögum um Þjóðminjasafn Íslands og lögum um Náttúruminjasafn Íslands

Málsnúmer 2211183Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur dagsettur 15. nóvember 2022 frá Menningar- og viðskiptaráðuneytinu þar sem kynnt er samráð um mál nr. 220/2022, "Frumvarp til laga um breytingu á safnalögum, lögum um Þjóðminjasafn Íslands og lögum um Náttúruminjasafn Íslands (samráð og skipunartími)".

Fundi slitið - kl. 17:40.