Fara í efni

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd

3. fundur 13. september 2022 kl. 16:30 - 17:05 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Ragnar Helgason formaður
  • Sigurður Bjarni Rafnsson varaform.
  • Ólína Björk Hjartardóttir varam.
    Aðalmaður: Auður Björk Birgisdóttir
  • Elínborg Erla Ásgeirsdóttir áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Sigfús Ólafur Guðmundsson verkefnastjóri
Fundargerð ritaði: Sigfús Ólafur Guðmundsson verkefnastjóri
Dagskrá
Samþykkt að taka upp með afbrigðum mál nr 2209151.
Samþykkt að taka upp með afbrigðum mál nr 2209162.

1.Félagsheimilið Héðinsminni - Umsókn um rekstur

Málsnúmer 2207171Vakta málsnúmer

Teknar fyrir umsóknir um rekstur félagsheimilisins Héðinsminnis. Auglýst var eftir rekstraraðilum fyrir félagsheimilið þann 20. júlí sl. og rann umsóknarfrestur út 15. ágúst. Ein umsókn barst í rekstur félagsheimilsins frá Auði Herdísi Sigurðardóttur fyrir hönd ahsig ehf. Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd ákveður að ganga til samninga við Auði Herdísi Sigurðardóttur (Ahsig ehf) um rekstur félagsheimilisins Héðinsminnis.

2.Beiðni um afnot af Sveinsstofu

Málsnúmer 2209070Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Kvenfélagi Lýtingsstaðahrepps, dagsett 6.9.2022, um afnot af Sveinsstofu í Árgarði fyrir geymslurými, vinnurými og fundaraðstöðu.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd felur starfsmönnum nefndarinnar að vinna málið áfram með rekstraraðila hússins, eignasjóð Skagafjarðar og kvenfélagi Lýtingsstaðahrepps.

Elínborg Erla Ásgeirsdóttir vék af fundi undir þessum lið.

3.Áfangastaðaáætlun - Skíðasvæði Tindastóls

Málsnúmer 2209162Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi frá Sigurði Haukssyni fyrir hönd Skíðadeildar Tindastóls, dagsett 13.09.2022, þar sem óskað er eftir að Skíðasvæði Tindastóls verði hluti af þeim verkefnum sem Skagafjörður tilnefnir í Áfangastaðaáætlun.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd þakkar erindið og felur starfsmönnum að auglýsa eftir verkefnum fyrir Skagafjörð í Áfangastaðaáætlun.

Sigurður Bjarni Rafnsson vék af fundi undir þessum lið.

4.Ályktanir aðalfundar Drangeyjar - smábátafélags Skagafjarðar 2022

Málsnúmer 2209151Vakta málsnúmer

Tekið til kynningar ályktanir aðalfundar Drangeyjar - smábátafélags Skagafjarðar, dagsett 11. september.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd mun hafa framlagðar ályktanir um byggðakvóta til hliðsjónar þegar sótt verður um sérreglur byggðakvóta fyrir Skagafjörð.

Fundi slitið - kl. 17:05.