Fara í efni

Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd

2. fundur 18. júlí 2022 kl. 16:30 - 17:20 að Sæmundargötu 7a
Nefndarmenn
  • Ragnar Helgason formaður
  • Sigurður Bjarni Rafnsson varaform.
  • Auður Björk Birgisdóttir aðalm.
  • Elínborg Erla Ásgeirsdóttir áheyrnarftr.
Starfsmenn
  • Sigfús Ólafur Guðmundsson verkefnastjóri
  • Heba Guðmundsdóttir verkefnastjóri
Fundargerð ritaði: Sigfús Ólafur Guðmundsson verkefnastjóri
Dagskrá

1.Styrkumsókn - Félagsleikar Fljótamanna 2022

Málsnúmer 2206172Vakta málsnúmer

Tekin fyrir styrkbeiðni frá Sjöfn Guðmundsdóttur, dagsett 21.06.2022, vegna Félagsleika Fljótamanna sem haldnir verða um verslunarmannahelgina.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir að styrkja hátíðina um 200.000 kr. Tekið af málaflokki 05710.

2.Úthlutun byggðakvóta

Málsnúmer 2207069Vakta málsnúmer

Erindi vísað til nefndarinnar af 6. fundi byggðaráðs. Tekinn fyrir tölvupóstur, dags. 6. júlí 2022, frá Þorgrími Ómari Unasyni, þar sem hann upplýsir um að umsókn hans um úthlutun byggðakvóta hafi verið hafnað af Fiskistofu vegna búsetu sinnar sem tilheyri byggðarlaginu Varmahlíð. Þá niðurstöðu kærði umsækjandi til Matvælaráðuneytis sem hefur nú staðfest höfnun Fiskistofu. Umsækjandi óskar eftir aðstoð Skagafjarðar sveitarfélags svo útgerð hans njóti jafnræðis á við aðrar útgerðir í Skagafirði.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd harmar ákvörðun Fiskistofu. Skagafjörður er eitt sveitarfélag og eitt atvinnusvæði. Nefndin undrast því afgreiðslu Fiskistofu að hafna úthlutun byggðarkvóta vegna skilgreininga póstnúmera innan sveitarfélagsins og hvetur Fiskistofu til að endurskoða regluverk sitt er kemur að þessu.

3.Skemmtiferðaskip - Seatrade Cruise MED í Malaga

Málsnúmer 2207108Vakta málsnúmer

Seatrade Cruise MED sölusýning í Malaga fer fram 13-15. september 2022. Á sýninguna mæta öll helstu skemmtiskipafélög og ferðaskipuleggjendur.
Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkir að senda fulltrúa á sölusýninguna.

4.Skemmtiferðaskip 2022

Málsnúmer 2207107Vakta málsnúmer

Fyrsta skemmtiferðaskipið í hátt í 40 ár lagðist að bryggju á Sauðárkróki 14. júlí sl. Heitir skipið Hanseatic Nature og voru um 180 ferðamenn um borð í skipinu sem áttu kost á því að skoða Skagafjörð. Þótti heimsóknin takast vel. Þrjár skipakomur eru áætlaðar í viðbót á þessu sumri og ganga bóknir fyrir næstu ár vel.

Næstu skipakomur í sumar eru:
World Explorer - 29.07.22
Azamara Pursuit - 13.08.22
Azamara Pursuit - 19.08.22

5.Góða skemmtun í sumar - átaksverkefni

Málsnúmer 2206236Vakta málsnúmer

Tekið til kynningar tölvupóstur um auglýsingaherferð frá Neyðarlínunni, dagsett 21.06.2022, sem ber heitið Góða skemmtun. Með átakinu Góða skemmtun vill Neyðarlínan hvetja almenning til að vera vakandi fyrir umhverfi sínu, stuðla að öryggi í samskiptum, virða mörk og segja frá ef einhver þarf á aðstoð að halda.

Fundi slitið - kl. 17:20.