Fara í efni

Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa

2. fundur 29. september 2023 kl. 12:45 - 13:00 með fjarfundabúnaði
Nefndarmenn
  • Sæunn Kolbrún Þórólfsdóttir
  • Sigurður H. Ingvarsson
Fundargerð ritaði: Sæunn Kolbrún Þórólfsdóttir skipulagsfulltrúi
Dagskrá

1.Neðri-Ás II lóð (L227648) - Lóðarmál, Umsókn um staðfestingu á afmörkun lóðar

Málsnúmer 2309298Vakta málsnúmer

Tekið fyrir erindi Sunnu Bjarkar Atladóttur hdl. dags. 29.09.2023, fyrir hönd Christine Gerlinde Busch, eiganda landsins Neðri-Ás 2, land 6 (L234078), sem verið að stofna úr landi Neðri-Áss 2 (L146478), og lóðarinnar Neðri-Ás II lóð (L227648) í Skagafirði, þar sem óskað er eftir staðfestingu á afmörkun ofangreindrar lóðar, líkt og sýnt er á framlögðum afstöðuuppdrætti gerðum á Stoð ehf. verkfræðistofu af Atla Gunnari Arnórssyni. Númer uppdráttar er S08 í verki nr. 7591-2002, dags. 28. sept. 2023.
Afmörkun lóðarinnar byggir á yfirlýsingu dags. 26/10 1966, þinglýsingarnúmer 421-A-18218, dags. 1/11 1966.
Lóðinni fylgir hesthús, F2502637, merking 01 0101, byggt 1957, skráð stærð 297,1 m2.
Skipulagsfulltrúi staðfestir hér með afmörkun lóðarinnar eins og hún kemur fram á framangreindum uppdrætti.
Gert með vísan til viðauka II í samþykkt nr. 1336, um stjórn Skagafjarðar dags. 21. nóvember 2022, og verður afgreiðslan kynnt skipulagsnefnd í samræmi við samþykkt þessa.

Fundi slitið - kl. 13:00.