Fara í efni

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa Svf Skagafjarðar

103. fundur 16. apríl 2020 kl. 15:00 - 16:00 í Ráðhúsi, Skr.
Nefndarmenn
  • Einar Andri Gíslason byggingarfulltrúi
  • Sigurður H. Ingvarsson starfsmaður byggingarfulltrúa
  • Rúnar Guðmundsson embættismaður
Starfsmenn
  • Jón Örn Berndsen skipulagsfulltrúi
Fundargerð ritaði: Einar Andri Gíslason byggingarfulltrúi
Dagskrá

1.Brúarland L146511 - Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2002219Vakta málsnúmer

Guðmundur J. Sverrisson kt. 291066-3219 sækir f.h. Makita ehf. kt. 651017-1300 eiganda Brúarlands í Deildardal L146511 um leyfi til að byggja vélageymslu á jörðinni. Framlagður aðaluppdráttur gerður af Þorgeiri Þorgeirssyni kt. 260260-7749. Uppdráttur er í verki 05-001, númer A1-001, dagsettur í febrúar 2020. Byggingaráform samþykkt.

2.Hvammur L229358 - Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2004093Vakta málsnúmer

Stefán Björnsson kt. 170753-2839 sækir um leyfi til að byggja einbýlishús á lóðinni Hvammur L229358. Framlagðir aðaluppdrættir gerðir af Haraldi S. Árnasyni kt. 120149-2539. Uppdrættir í verki 20-303, númer 1302 og 1303, dagsettir 5. mars 2020. Byggingaráform samþykkt.

3.Fosshóll 1 L229259 - Umsókn um byggingarleyfi.

Málsnúmer 2002020Vakta málsnúmer

Sæmundur Jónsson kt. 160191-3339 sækir um leyfi til að byggja íbúðarhús á lóðinni Fosshóll 1 L229259 í Sæmundarhlíð. Framlagðir aðaluppdrættir gerðir á Plan-teiknistofu af Ragnari Má Ragnarssyni kt. 200373-5109. Uppdrættir númer 001 til 004, dagsettir 20. janúar 2020. Byggingaráform samþykkt.

4.Bessastaðir L145967 - Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2004095Vakta málsnúmer

Jón Eyjólfur Jónsson kt. 020665-4839 sækir um leyfi til að einangra og klæða utan íbúðarhúsið á Bessastöðum L145967 í Sæmundarhlíð. Klæðningarefni Steni. Erindið samþykkt, byggingarleyfi veitt.

5.Hafgrímsstaðir L146169 - Umsókn um niðurrif mannvirkja.

Málsnúmer 2004049Vakta málsnúmer

Snæbjörn Hólm Guðmundsson kt. 100559-5959 sækir um og f.h. Blettar ehf. kt. 630304-3180, leyfi til að rífa geymslu og hlöðu, skráð mhl. 04 og 06 á jörðinni Hafgrímsstöðum L146169. Húsin sem um ræðir eru byggð árið 1960. Erindið samþykkt.

Fundi slitið - kl. 16:00.