Fara í efni

Beiðni um kynningarfund vegna breytinga á Aðalskipulagi 2020-2035

Málsnúmer 2404002

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 47. fundur - 04.04.2024

Hanna Dóra Björnsdóttir sendir inn erindi þar sem hún óskar eftir opnum íbúafundi eða kynningarfundi vegna breytingar á Aðalskipulagi sveitarfélagsins Skagafjarðar 2020- 2035 er varðar afþreyingar- og ferðamannasvæði við Sauðárgil (AF-402) á Sauðárkróki.
Málið er númer 515/2023 í Skipulagsgáttinni, sjá nánar hér: https://skipulagsgatt.is/issues/2023/515.

Skipulagsnefnd fellst á beiðni um opinn kynningarfund og mun dagsetning hans vera auglýst innan tíðar.