Fara í efni

Lambeyri ehf. 196141 - Umsókn um byggingarreit

Málsnúmer 2204195

Vakta málsnúmer

Skipulags- og byggingarnefnd - 433. fundur - 12.05.2022

Friðrik Rúnar Friðriksson f.h. Árhvamms ehf. þinglýsts eiganda landeignarinnar Lambeyri ehf., landnúmer 196141, óskar eftir heimild til að stofna 2.475 m² byggingarreit á landinu, skv. meðfylgjandi afstöðuuppdrætti nr. S01 í verki nr. 720468 útg. 16.12.2021. Afstöðuuppdráttur unnin hjá Stoð ehf. verkfræðistofu.
Um er að ræða byggingarreit fyrir geymsluhúsnæði. Fjöldi mannvirkja innan byggingarreits verði að hámarki tvö og hámarksbyggingarmagn verður 450 m² og hámarksnýtingarhlutfall byggingarreits því 0,18.

Skipulags- og byggingarnefnd felur skipulagsfulltrúa að afgreiða erindið að fenginni umsögn minjavarðar.