Fara í efni

Syðra-Skörðugil 146065 - Umsókn um landskipti.

Málsnúmer 2204174

Vakta málsnúmer

Skipulags- og byggingarnefnd - 432. fundur - 27.04.2022

Sigríður Fjóla Viktorsdóttir og Elvar E. Einarsson þinglýstir eigendur jarðarinnar Syðra-Skörðugils L146065 óska eftir heimild til að skipta 5,77 ha spildu (íbúðarhúsalóð) úr landi jarðarinnar skv. meðfylgjandi afstöðuuppdrætti nr. S-101 í verki nr. 7153-6001, dags. 10. mars 2022. Afstöðuuppdrátturinn unnin á Stoð efh. verkfræðistofu af Atla Gunnari Arnórssyni.
Óskað er eftir því að spildan fái heitið Syðra-Skörðugil 1.
Landskipti þessi samræmast aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2020-2035 og styðja við markmið aðalskipulags um búsetu í dreifbýli. Landskipti þessi hafa óveruleg áhrif á búrekstarskilyrði og skerða ekki landbúnaðarsvæði í I. og II. flokki. Engin verndarsvæði skv. gildandi aðalskipulagi eru innan útskiptrar spildu. Engin fasteign er á umræddri spildu.
Lögbýlaréttur og öll hlunnindi munu áfram fylgja Syðra-Skörðugili, landnúmer 146065.

Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið eins og það er fyrirlagt.

Einar E. Einarson vék af fundi við afgreiðslu málsins.