Fara í efni

Úthlutun lóðar í Nestúni

Málsnúmer 2203267

Vakta málsnúmer

Skipulags- og byggingarnefnd - 431. fundur - 13.04.2022

Mál áður á dagskrá 413. fundi skipulags- og byggingarnefndar :
“Lóðarúthlutun skipulags- og byggingarnefndar - Kleifatún 9-11, 2106266
Með vísan til minnisblaðs Landslaga frá 2. september 2021 liggur fyrir að ekki er til gilt deiliskipulag af svæðinu. Með vísan til þess er sveitarstjóra falið að leita samkomulags við lóðarhafa um afturköllun úthlutunar lóðarinnar gegn úthlutun annarrar lóðar í stað hennar. Jafnframt er lagt til að fljótlega verði farið í vinnu við gerð deiliskipulags af svæðinu. Þar verði m.a., í samráði við íbúa, skoðuð nýting núverandi opinna svæða og hvort rétt sé að halda þeim óbreyttum eða nýta þau á annan hátt. Sveitarstjóra er falið að tilkynna lóðarhafa framangreint sem og þeim sem athugasemdirnar gerðu. Sigurður H. Ingvarsson starfsmaður nefndarinnar, vék af fundi við afgreiðslu þessa dagskrárliðar."

Lagt fram minnisblað frá sveitarstjóra Sveitarfélagsins Skagafjarðar.

Skipulags- og byggingarnefnd harmar þau mistök sem áttu sér stað við fyrri úthlutun lóðarinnar við Kleifartún 9-11 og samþykkir að hluteigandi fái úthlutað þess í stað parhúsalóð við Nestún samkvæmt framlögðu minnisblaði.
Dregið verður um úthlutun þeirrar lóðar í vitna viðurvist.

Skipulags- og byggingarnefnd - 433. fundur - 12.05.2022

Málið áður á dagskrá á 413. og 431. fundi skipulags- og byggingarnefndar. Þar m.a. bókað : “Skipulags- og byggingarnefnd harmar þau mistök sem áttu sér stað við fyrri úthlutun lóðarinnar við Kleifatún 9-11 og samþykkir að hluteigandi fái úthlutað þess í stað parhúsalóð við Nestún samkvæmt framlögðu minnisblaði. Dregið verður um úthlutun þeirrar lóðar í vitna viðurvist."
Skúli Hermann Bragason mætti á fundinn og dróg um eina af parhúsalóðum í Nestúni. Útdráttur fór fram í samræmi við framangreinda bókun. Upp kom lóð nr. 20 í Nestúni, skipulags- og byggingarnefnd samþykkir að úthluta Skúla Hermanni Bragasyni fyrir hönd SB byggir ehf. lóðinni.