Fara í efni

Miðhús 146567 - Umsókn um landskipti

Málsnúmer 2108021

Vakta málsnúmer

Skipulags- og byggingarnefnd - 410. fundur - 25.08.2021

Sigmundur Jón Jóhannesson kt. 210865-4899 þinglýstur eigandi jarðarinnar Miðhúsa (landnr. L146567) í Óslandshlíð Skagafirði, óskar eftir leyfi til þess að stofna landspildu, Miðhús 1, úr landi jarðarinnar, líkt og sýnt er á meðfylgjandi afstöðuuppdrætti gerðum á Stoð ehf. verkfræðistofu af Braga Þór Haraldssyni.
Númer uppdráttar er S01 í verki nr. 716101, dags. 23. júlí 2021.
Landið sem um ræðir verður tekið úr landbúnaðarnotkun.
Öll hlunnindi munu áfram tilheyra jörðinni Miðhús, landnr. 146567.
Lögbýlarétturinn mun áfram fylgja landnúmerinu 146567.
Landskipti þessi samrýmast gildandi aðalskipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar 2009-2021.
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið eins og það er fyrir lagt.