Fara í efni

Sauðárkrókur 218097 - Túnahverfi, opið svæði

Málsnúmer 2106050

Vakta málsnúmer

Skipulags- og byggingarnefnd - 410. fundur - 25.08.2021

Ingvar Gýgjar Sigurðarson sækir fh. Veitu-og framkvæmdasviðs Sveitarfélagsins Skagafjarðar um leyfi fyrir reisingu leiktækja á opnu afmörkuðu svæði austan Gilstúns. Framlögð gögn unnin af Stoð ehf. Verkfræðistofu sýnir útmörk svæðis. Fyrirhuguð framkvæmd verður áfangaskipt og nær umsókn einungis til resingu leiktækja. Fram kemur í umsókn að leiktækin verði vottuð og af viðurkenndri gerð. Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið eins og það er fyrir lagt

Skipulags- og byggingarnefnd - 416. fundur - 04.11.2021

Málið var áður á dagskrá nefndarinnar þann 25.ágúst síðastliðinn.
Sviðsstjóri Veitu- og framkvæmdarsviðs Sveitarfélagsins Skagafjarðar óskar eftir framkvæmdaleyfi fyrir reisingu leiksvæðis á svæði austan Gilstúns. Meðfylgjandi teikning, unnin af Stoð ehf. verkfræðistofu dagssett 7.okt 2021 og sýnir staðsetningu leiktækisins og einnig er meðfylgjandi velvild íbúa sem eiga aðliggjandi lóðir að opna svæðinu þar sem leiktækið mun standa. Leiktækin eru vottuð og af viðurkenndri gerð.
Nefndin frestar afgreiðslu.

Skipulags- og byggingarnefnd - 422. fundur - 07.01.2022

2106050 - Sauðárkrókur 218097 - Túnahverfi, opið svæði

Málið áður á dagskrá nefndarinnar þann 25.ágúst og 4. nóvember 2021. Þá bókað. "Sviðsstjóri Veitu- og framkvæmdarsviðs Sveitarfélagsins Skagafjarðar óskar eftir framkvæmdaleyfi fyrir reisingu leiksvæðis á svæði austan Gilstúns. Meðfylgjandi teikning, unnin af Stoð ehf. verkfræðistofu dagssett 7.okt 2021 og sýnir staðsetningu leiktækisins og einnig er meðfylgjandi velvild íbúa sem eiga aðliggjandi lóðir að opna svæðinu þar sem leiktækið mun standa. Leiktækin eru vottuð og af viðurkenndri gerð. Nefndin frestar afgreiðslu."
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið eins og það er fyrir lagt.