Fara í efni

Umhverfis- og samgöngunefnd - 176

Málsnúmer 2101004F

Vakta málsnúmer

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 406. fundur - 20.01.2021

Fundargerð 176. fundar umhverfis- og samgöngunefndar frá 11. janúar 2021 lögð fram til afgreiðslu á 406. fundi sveitarstjórnar eins og einstök erindi bera með sér. Stefán Vagn Stefásson kynnti fundargerð. Enginn kvaddi sér hljóðs.
  • Umhverfis- og samgöngunefnd - 176 Mánudaginn 11. janúar 2021, efndi Samband íslenskra sveitarfélaga, umhverfis- og auðlindaráðuneytið og samstarfsvettvangur sorpsamlaga á suðvesturhorninu, til opins kynningar- og umræðufundar um fyrirliggjandi greiningu á þörf fyrir hátæknibrennslu til meðhöndlunar á brennanlegum úrgangi og fyrstu aðgerðum til undirbúnings að uppbyggingu innviða til brennslu.
    Nefndarmenn hlýddu á erindin sem stóðu frá 10:00 til 12:15. Kynningarfundurinn var mjög áhugaverður og fræðandi. Nefndin leggur til að sviðsstjóri láti meti magn brennanlegs úrgangs hjá Sveitarfélaginu.
    Bókun fundar Afgreiðsla 176. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 406. fundi sveitarstjórnar 20. janúar 2021 með átta atkvæðum.
  • Umhverfis- og samgöngunefnd - 176 Ábending kom frá lögreglustjóra á Norðurlandi vestra, Brunavörnum Skagafjarðar, Brunavörnum Austur-Húnvetninga og Brunavörnum Húnaþings á samfélagsmiðlum þann 29. desember 2020. Í ábendingunni er farið yfir losun úrgangs utan móttökustöðvar, sorpílata eða grenndargáma og gruns um brennslu á sorpi og annars úrgangs.
    Nefndin tekur undir ábendingu frá viðbragðsaðilum og leggur áherslu á að farið sé að reglum um meðhöndlun sorps og annars úrgangs.
    Bókun fundar Afgreiðsla 176. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 406. fundi sveitarstjórnar 20. janúar 2021 með átta atkvæðum.
  • Umhverfis- og samgöngunefnd - 176 Unnin hafa verið drög að bættri aðkomu að Sauðárkróki frá Þverárfjallsvegi (744). Sviðsstjóri fer yfir hugmynd sem unnin hefur verið sem varðar aðkomuna.
    Nefndin felur sviðsstjóra af kynna þessa hugmynd fyrir Vegarerðinni og upplýsa nefndina um framvindu málsins.
    Bókun fundar Afgreiðsla 176. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 406. fundi sveitarstjórnar 20. janúar 2021 með átta atkvæðum.