Fara í efni

Norðurbrún 9b - afmörkun lóðar

Málsnúmer 2009270

Vakta málsnúmer

Stjórn Menningarseturs Skagfirðinga - 14. fundur - 30.09.2020

Fyrir liggur tillaga frá skipulagsfulltrúa um afmörkun lóðar við Norðurbrún 9b í Varmahlíð. Samþykkt að skipulagsfulltrúi vinni málið áfram í samvinnu við íbúa og hagsmunaaðila.

Skipulags- og byggingarnefnd - 387. fundur - 06.10.2020

Fyrir fundinn er lögð tillaga að afmörkun lóðar fyrir íbúðarhús á svæði milli Norðurbrúnar 9 og Norðurbrúnar 11 í Varmahlíð. Svæðið hefur staðið ónýtt um langa tíð, og virðist líklegt til nýtingar sem íbúðarhúsalóð. Stjórn Menningarseturs Skagafjarðar hefur með bókun dags. 30.9.2020, samþykkt að fela skipulagsfulltrúa að vinna áfram með tillöguna í samvinnu við íbúa og hagsmunaaðila.Tillagan er unnin af Stoð ehf verkfræðistofu.
Skipulags- og byggingarnefnd felur skipulagsfulltrúa að fullvinna tillögu að lóðarblaði og kynna fyrir nálægum lóðarhöfum og hagsmunaaðilum.

Skipulags- og byggingarnefnd - 405. fundur - 29.04.2021

Á fundi 387 í skipulags- og byggingarnefnd fól nefndin skipulagsfulltrúa að fullvinna tillögu að lóðarblaði íbúðarhúsalóðar, Norðurbrún 9b sem er autt svæði á milli Norðurbrúnar 9 og 11 í Varmahlíð. Tillagan liggur fyrir og hefur verið grenndarkynnt. Borist hafa athugasemdir við tillöguna.
Skipulags- og byggingarnefnd felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram í samræmi við umræður nefndarinnar.