Fara í efni

Fellstún 14 - Umsókn um byggingarleyfi.

Málsnúmer 2008233

Vakta málsnúmer

Skipulags- og byggingarnefnd - 386. fundur - 21.09.2020

Halldór Ingólfur Hjálmarsson kt. 300155-2789, leggur fram umsókn um leyfi til að byggja á lóðinni Fellstúni 14 á Sauðárkróki, garðskála við austurvegg íbúðarhúss og kalt skýli milli íbúðarhúss og bílgeymslu. Auk þess er óskað eftir að byggja steypta veggi, stoðveggi við lóðarmörk, samkvæmt meðfylgjandi uppdráttum. Fyrir liggur samþykki lóðarhafa aðliggjandi lóða vegna byggingu stoðveggja. Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið eins og það er fyrir lagt.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa Svf Skagafjarðar - 110. fundur - 30.09.2020

Halldór Ingólfur Hjálmarsson, kt. 300155-2789 sækir um um leyfi til að byggja garðskála og tengigang milli íbúðar og bílskúrs á lóðinni númer 14 við Fellstún. Framlagðir aðaluppdrættir eru gerðir af Ingvari Gýgjar Sigurðarsyni, kt. 020884-3639. Uppdrættir eru í verki 3129, númer A-101, A-102 A-103 og A-104, dagsettir 31. ágúst 2020. Byggingaráform samþykkt.