Fara í efni

Umhverfismatsdagurinn 2019; málþing 13. sept

Málsnúmer 1909010

Vakta málsnúmer

Skipulags- og byggingarnefnd - 355. fundur - 05.09.2019

Umhverfismatsdagurinn, árlegt málþing Skipulagsstofnunar um umhverfismat, fer fram í Norræna húsinu þann 13. september næstkomandi klukkan 13.00-16.00. Í tilefni af yfirstandandi endurskoðun laga um mat á umhverfisáhrifum er sjónum beint að virkni umhverfismats fyrir samfélagið og umbótum á framkvæmd umhverfismats. Samþykkt að þeir fulltrúar sem sjá sér fært að mæta sæki fundinn.