Fara í efni

Laugatún 25-27 - Umsókn um lóð

Málsnúmer 1802079

Vakta málsnúmer

Skipulags- og byggingarnefnd - 317. fundur - 16.02.2018

Sigríður Magnúsdóttir kt. 131062-5679 stjórnarformaður Skagfirskra leiguíbúða hses kt. 621216-1200 sækir um lóðina Laugartún 25-27 á Sauðárkróki til að byggja tvílyft íbúðarhús með fjórum íbúðum. Erindið samþykkt

Skagfirskar leiguíbúðir hses - 3. fundur - 20.03.2018

Lagt fram bréf dagsett 22. febrúar 2018 frá skipulags- og byggingarnefnd. Þar kemur fram að á 317. fundi nefndarinnar, 16. febrúar 2018 hafi umsókn Skagfirskra leiguíbúða hses. um lóðina Laugartún 25-27 á Sauðárkróki til að byggja tvílyft íbúðarhús með fjórum íbúðum verið samþykkt. Afgreiðsla nefndarinnar staðfest af sveitarstjórn þann 21. febrúar 2018.