Fara í efni

Páfastaðir 145989 - Umsókn um byggingareit.

Málsnúmer 1702323

Vakta málsnúmer

Skipulags- og byggingarnefnd - 302. fundur - 24.03.2017

Sigurður Baldursson kt. 270963-2349 og Guðrún Kristín Jóhannesdóttir kt. 200861-4269, þinglýstir eigendur Páfastaða, landnr. 145989, sækja um heimild til þess að stofna tvo byggingarreiti í landi jarðarinnar, skv. meðfylgjandi afstöðuuppdrætti, sem gerður er á Stoð ehf. verkfræðistofu af Atla Gunnari Arnórssyni, dags. 22. feb. 2017, breytt 13. mars 2017. Númer uppdráttar er S101 í verki nr. 7783-01.

Annars vegar er um að ræða byggingarreit vegna fyrirhugaðrar fjósbyggingar, vestur og norður af núverandi fjósi. Hins vegar er um að ræða byggingarreit vegna haugtanks úr forsteyptum einingum, sem staðsettur verður norðan við núverandi fjós. Fyrir liggur umsögn Minjavarðar og umsögn RARIK vegna nálægðar fjósbyggingar við raflínu. Erindið samþykkt.