Fara í efni

Gjaldskrá 2017 - Sorpurðun og sorphirða

Málsnúmer 1611095

Vakta málsnúmer

Umhverfis- og samgöngunefnd Svf Skagafjarðar - 122. fundur - 10.11.2016

Tekin var fyrir gjaldskrá fyrir sorpurðun og sorphirðu fyrir árið 2017.Nefndin samþykkir 5,5% gjaldskrárhækkun og vísar gjaldskránni til Byggðarráðs.

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar - 764. fundur - 17.11.2016

Vísað til byggðarráðs frá 122. fundi umhverfis- og samgöngunefndar tillögu um breytingu á gjaldskrá fyrir sorpurðun og sorphirðu í Sveitarfélaginu Skagafirðifrá og með 1. janúar 2017. Lagt er til að gjaldskráin verði hækkuð um 5,5% frá núgildandi gjaldskrá.

Byggðarráð samþykkir gjaldskrána og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar.

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 348. fundur - 23.11.2016

Vísað frá 764. fundi byggðarráðs frá 17. nóvember 2016, tillögu um breytingu á gjaldskrá fyrir sorpurðun og sorphirðu í Sveitarfélaginu Skagafirði frá og með 1. janúar 2017. Lagt er til að gjaldskráin verði hækkuð um 5,5% frá núgildandi gjaldskrá.



Gjaldskrá fyrir sorpurðun og sorphirðu í Sveitarfélaginu Skagafirði borin upp til afgreiðslu og samþykkt með níu atkvæðum.