Fara í efni

Gjaldskrá skipulagsfulltrúa v. 2017

Málsnúmer 1611059

Vakta málsnúmer

Skipulags- og byggingarnefnd - 294. fundur - 18.11.2016

Lögð fram til umræðu breyting á gjaldskrá skipulagsfulltrúa vegna framkvæmda- og þjónustugjalda í Sveitarfélaginu Skagafirði. Breytingin er aðlöguð að breyttu lagaumhverfi. Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir framangreind drög og vísar þeim til umfjöllunar í byggðarráði.

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar - 765. fundur - 24.11.2016

Vísað til byggðarráðs frá 294. fundi skipulags- og byggingarnefndar tillögu um breytingu á gjaldskrá skipulagsfullltrúa frá og með 1. janúar 2017.

Byggðarráð samþykkir gjaldskrána og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar.

Skipulags- og byggingarnefnd - 295. fundur - 09.12.2016

Lögð fram til umræðu breyting á gjaldskrá skipulagsfulltrúa vegna framkvæmda- og þjónustugjalda í Sveitarfélaginu Skagafirði. Breytingin er aðlöguð að breyttu lagaumhverfi.Fyrirliggjandi drög samþykkt og vísað til Byggðarráðs til afgreiðslu.

Byggðarráð Svf. Skagafjarðar - 768. fundur - 12.12.2016

Lögð fram tillaga að breytingu á gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfa í Sveitarfélaginu Skagafirði. Gjaldskránni var vísað frá 295. fundi skipulags- og byggingarnefndar þann 9. desember 2016.

Byggðarráð samþykkir gjaldskrána og vísar henni til afgreiðslu sveitarstjórnar.

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 349. fundur - 14.12.2016

Vísað til afgreiðslu sveitarstjórnar, frá 768. fundi byggðarráðs 12. desember, tillögu um breytingu á gjaldskrá skipulagsfulltrúa frá og með 1. janúar 2017.



Tillagan borin upp til afgreiðslu sveitarstjórnar og samþykkt með níu atkvæðum.