Fara í efni

Skógargata 11 - Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 1504149

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa Svf Skagafjarðar - 7. fundur - 21.05.2015

Guðmundur Þór Guðmundsson byggingarfræðingur fyrir hönd Eignasjóðs Sveitarfélagsins Skagafjarðar, eigenda Gúttó Skógargötu 11, sæki með bréfi dagsettu 12.12.2014 um leyfi til að gera breytingu á hluta hússins. Breytingin felst í að rífa gamlan inngang að suð-vestan ásamt að lagfæra útveggi, dyr og glugga í salarhluta hússins. Meðfylgjandi er aðaluppdráttur sem sýnir fyrirhugaðar breytingar. Uppdráttur útgefinn 16.09.2014 samþykktur af Minjastofnun Íslands 27. apríl 2015. Séruppdrættir af gluggum eru samþykktir af Minjastofnun Íslands 20. maí 2015. Byggingaráform samþykkt.