Fara í efni

Hesteyri 2 - Lóðarmál

Málsnúmer 1202264

Vakta málsnúmer

Skipulags- og byggingarnefnd - 232. fundur - 23.02.2012

Samþykkt að leggja til við Umhverfis- og samgöngunefnd að lóðin Hesteyri 2 stækki í samræmi við meðfylgjandi afstöðumynd dagsett 21. febrúar 2012.

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 287. fundur - 07.03.2012

Afgreiðsla 232. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 287. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.

Umhverfis- og samgöngunefnd Svf Skagafjarðar - 73. fundur - 03.04.2012

Á 232 fundi skipulags- og byggingarnefndar var fjallað um stækkun lóðarinnar Hesteyri 2. Stækkun samkvæmt afstöðumynd sem dagsett er 21. febrúar 2012. Skipulags- og byggingarnefnd vísaði málinu til umsagnar Umhverfis- og samgöngunefndar. Nefndin gerir ekki athugasemdir við að lóðin Hesteyri 2 stækki sem þessu nemur. Gáma smábátasjómanna á svæðinu þarf að færa og er yfirhafnarverði falið að gera það í samráði við sjómennina.

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 289. fundur - 02.05.2012

Afgreiðsla 73. fundar umhverfis- og samgöngunefndar staðfest á 289. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.