Fara í efni

Eyrarvegur 20 (143289)- Fyrirspurn um byggingarleyfi.

Málsnúmer 1201207

Vakta málsnúmer

Skipulags- og byggingarnefnd - 232. fundur - 23.02.2012

Ágúst Andrésson kt 110571-4889, leggur fram fyrir hönd fyrirspurnaruppdrætti um stækkun kjötafurðarstöðvar KS á lóðinni númer 20 við Eyrarveg. Reiknað er með að uppbyggingin taki 5 - 6 ár samkvæmt framkvæmdaáætlun. Meðfylgjandi eru gögn sem gera grein fyrir fyrirhuguðum framkvæmdum. Einnig óskar Ágúst eftir viðræðum við sveitarfélagið varðandi framtíðarfyrirkomulag lóða-og byggingarmála austan afurðarstöðvarinnar og Fisk Seafood. Meðfylgjandi gögn gera grein fyrir umbeðinni stækkun lóðarinnar. Nefndin tekur jákvætt í erindið. Samþykkt að fara í viðræður við umsækjanda um lóðarmál.

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 287. fundur - 07.03.2012

Afgreiðsla 232. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 287. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.