Fara í efni

Skagfirðingabraut 26 - Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 1112378

Vakta málsnúmer

Skipulags- og byggingarnefnd - 232. fundur - 23.02.2012

Lagt fram til kynningar. Byggingarleyfisumsókn Ingileifar Oddsdóttur skólameistara f.h. Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra. Umsóknin er dagsett 21. desember 2011. Umsókn um stöðu- og byggingarleyfi fyrir borholuhúsi á lóð Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra númer 26 við Skagfirðingabraut á Sauðárkróki. Fram kemur í umsókninni að húsið verði flutt á leigulóð Skagafjarðarveitna með landnúmer 211873 í landi Bræðraár í Hrolleifsdal. Byggingarleyfi veitt 16. febrúar 2012.

Sveitarstjórn Sveitarfélagins Skagafjarðar - 287. fundur - 07.03.2012

Afgreiðsla 232. fundar skipulags- og byggingarnefndar staðfest á 287. fundi sveitarstjórnar með níu atkvæðum.