Fara í efni

Lýtingsstaðir lóð 1-Umsókn um landskipti

Málsnúmer 1010102

Vakta málsnúmer

Skipulags- og byggingarnefnd - 216. fundur - 20.10.2010

Lýtingsstaðir umsókn um stofnun lóðar. Sveinn Guðmundsson kt. 250749-2959, þinglýstur eigandi jarðarinnar Lýtingsstaðir (landnr. 146202) Tungusveit Skagafirði sækir um leyfi til þess að stofna lóð í landi jarðarinnar, líkt og sýnt er á meðfylgjandi afstöðuuppdrætti gerðum á Stoð ehf. verkfræðistofu af Braga Þór Haraldssyni.  Númer uppdráttar er S-01 í verki nr. 7207, dags. 14. október, 2010. Landið sem um ræðir verður tekið úr landbúnaðarnotkun. Öll hlunnindi munu áfram tilheyra jörðinni Lýtingsstaðir, landnr. 146202.

Lögbýlarétturinn mun áfram fylgja landnúmerinu  146202. Erindið samþykkt.