Fara í efni

Gil land 219239 - Umsókn um byggingarleyfi og breytingum

Málsnúmer 1005285

Vakta málsnúmer

Skipulags- og byggingarnefnd - 208. fundur - 10.06.2010

Gil land 219239 - Umsókn um byggingarleyfi. Sigurjóna Skarphéðinsdóttir 190557-5459 fh. eigenda sækir með bréfi dagsetu 14. maí sl., um byggingarleyfi fyrir frístundahúsi á lóðinni Gil land 219239.  Húsið sem um ræðir er í byggingu á lóðinni nr. 8 við Borgarröst samkvæmt samþykkt skipulags-og byggingarnefndar frá 3. mars sl. Framlagðir breyttir aðaluppdrættir  gerðir á Nýju teiknistofunni af Sigurði Einarssyni kt. 140432-4749 og eru þeir dagsettir 17.05.2010. Erindið samþykkt. Vegna setlauga á lóðum vill skipulags- og byggingarnefnd sérstaklega bóka: Setlaugar á lóðum skulu búnar læsanlegu loki til að hylja þær, meðan þær eru ekki í notkun, eða öðrum búnaði til varnar slysum. Umhverfis setlaugarnar þarf að vera handrið þannig útbúið að ekki sé hætta á að börn geti dottið í setlaugina. Hitastýrð blöndunartæki eða búnaður þarf að vera svo að vatnshiti fari ekki yfir 43°C við töppunarstað