Fara í efni

Efra-Haganes 1 lóð 4 (146802) - Umsókn um afmörkun lóðar.

Málsnúmer 1003228

Vakta málsnúmer

Skipulags- og byggingarnefnd - 203. fundur - 19.03.2010

Guðlaug Márusdóttir kt. 051126-3949  f.h. Haganess ehf. kt. 560704-2240 sem þinglýstur eigandi að jörðinni Efra-Haganes I , landnr. 146793,  og Sveinn Sveinsson kt. 201237-7699 samkvæmt þinglýstu umboði fh. eigenda Brautarholts landnr. 146788, sem er ¼ af Efra-Haganesi I,  í Fljótum Skagafirði sækja með bréfi dagsettu 4. mars sl., um staðfestingu skipulagsyfirvalda á lóðarmörkum. Lóðin sem um ræðir er stofnuð úr framangreindri jörð, (Vatnsendi), númer 4 á framlögðum yfirlits- og afstöðuuppdrætti, 380,3m² og hefur landnúmerið 146802. Uppdrátturinn er gerður á Stoð ehf. verkfræðistofu af Braga Þór Haraldssyni. Númer uppdráttar er S01 í verki nr. 72026, og er hann dagsettur 8. febrúar 2010. Lögbýlarétturinn mun áfram fylgja landnúmerinu 146793.

Fylgjandi umsókn er yfirlýsing dagsett 3.mars sl., þar sem fram kemur að eigandi mannvirkja á lóðinni samþykkir afmörkun og stærð lóðarinnar. Erindið samþykkt.