Fara í efni

Birkimelur 5 - Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 0909034

Vakta málsnúmer

Skipulags- og byggingarnefnd - 185. fundur - 30.09.2009





1    Birkimelur 5  Varmahlíð. Umsókn um leyfi fyrir viðbyggingu. Jón M. Katarínusson og Hrafnhildur Björnsdóttir sækja um byggingarleyfi fyrir breytingum og viðbyggingu við einbýlishúsið að Birkimel 5 í Varmahlíð. Erindið var áður á fundum nefndarinnar þann 13. maí 2009 og 17. júlí 2009. Eigendum eftirtalinna húsa við Birkimel. nr. 3, 7, 8a, 8b, 10, 12, 14, 16 og 18 var grenndarkynnt erindið. Engar athugasemdir bárust. Skipulags-og byggingarnefnd samþykkir byggingarleyfi sem byggt er á framlögðum aðaluppdráttum gerðum á Stoð ehf. af Magnúsi Ingvarssyni. Uppdrættirnir eru í verki númer 7498, nr., A-100, A-101, A-102 og A-103 og eru þeir dagsettir 23. júlí 2009.