Skagafjörður vekur athygli á því að Orkustofnun hvetur til umhverfisvænnar orkuöflunar við húshitun og að bæta orkunýtni í rafhitun á landinu.
Með breytingum á lögum um niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar var opnað á möguleika ríkisins til að taka þátt í stofnkostnaði við umhverfisvæna orkuöflun sem dregur úr rafhitun eða olíukyndingu. Hægt er að...
Skagafjörður auglýsir til tímabundinnar leigu Lóð 25 á Nöfum, F2337255, ræktunarland 1,25ha.
Leigutími frá 10. maí 2023 til 31. desember 2024.
Umsækjendur skulu tilgreina í umsókn hverskonar not þeir hugsa sér að hafa af landinu og hvort þeir hafi leyfi til búfjárhalds í þéttbýli.
Umsóknir má senda í tölvupósti til skagafjordur@skagafjordur.is...
Íbúar í Steinsstaðahverfi og að Mælifelli athugið:
Heitavatnslaust verður á morgun 12. apríl í Steinsstaðahverfi og að Mælifelli vegna tenginga í dælustöð.
Lokað verður fyrir hitaveituna kl. 10 að morgni og mun lokunin vara fram eftir degi.
Beðist er velvirðingar á óþægindum sem þetta kann að valda.
Skagafjörður óskar eftir tilboðum í flísalögn og múrverk á uppsteyptri viðbyggingu við Sundlaug Sauðárkróks. Í verkinu felst flísalögn laugarkerja og múrverk steyptra flata úti og inni á nýju laugarsvæði sunnan núverandi sundlaugar, með barnalaug, busllaug, kennslulaug og lendingarlaug ásamt köldum potti.
Sjá auglýsingu hér að neðan:
Vegna framkvæmda í afgreiðslu ráðhússins verður ekki unnt að taka á móti fólki næstu þrjá daga. Verður afgreiðsla ráðhússins því lokuð fyrir heimsóknir mánudaginn 3. apríl, þriðjudaginn 4. apríl og miðvikudaginn 5. apríl. Hægt er að hafa samband við afgreiðslu í gegnum síma 455 6000 og í gegnum netfangið skagafjordur@skagafjordur.is. Afgreiðslan...
Óskað er eftir tilnefningum fyrir Samfélagsverðlaun Skagafjarðar 2023.
Samfélagsverðlaun Skagafjarðar eru veitt árlega þeim einstaklingi, fyrirtæki, stofnun eða félagasamtökum í Skagafirði sem þykja standa sig afburða vel í að efla skagfirskt samfélag.
Samfélagsverðlaun Skagafjarðar voru veitt í fyrsta sinn árið 2016 og verða nú veitt í...
Enn á ný stendur Safnahús Skagfirðinga fyrir vísnakeppni í aðdraganda Sæluviku, en keppninni var komið á árið 1976. Reglurnar eru sem fyrr einfaldar og góðar; annars vegar að botna fyrirfram gefna fyrriparta og/eða semja vísu um ákveðið málefni. Ekki er nauðsynlegt að botna allt og einnig er í lagi að senda bara inn vísu.
Að þessu sinni var...