Skip to content  

Port

Auglýsing um skipulagsmál - Lambeyri í Tungusveit

08.02.2023
Fréttir
Deiliskipulag - Skipulagslýsing Samkvæmt 2. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er auglýst skipulagslýsing fyrir eftirfarandi skipulagssvæði: Lambeyri – Skipulagslýsing. Sveitarstjórn Skagafjarðar samþykkti á fundi þann 16. nóvember 2022, beiðni landeiganda um heimild til að vinna deiliskipulag fyrir Lambeyri í Tungusveit skv. 2.mgr. 38.gr....

Dagur leikskólans er í dag

06.02.2023
Fréttir
Í dag, 6. febrúar, er Dagur leikskólans. Af því tilefni gera leikskólarnir í Skagafirði sér gjarnan dagamun og halda daginn hátíðlegan. Markmiðið með Degi leikskólans er að stuðla að jákvæðri umræðu um leikskólastarf og um leið beina athygli samfélagsins að því faglega og metnaðarfulla starfi sem innt er af hendi í leikskólum landsins á degi...

Álagningu fasteignagjalda 2023 lokið

01.02.2023
Fréttir
Allir greiðendur fasteignagjalda til sveitarfélagsins, einstaklingar og lögaðilar, geta nú nálgast álagningarseðla í Íbúagátt á heimasíðu sveitarfélagsins. Einnig er hægt að sækja álagningarseðla á vefsíðu island.is undir flipanum "Mínar síður". Álagningarseðlar eru sendir á pappírsformi til þeirra greiðenda sem þess óskuðu. Greiðslukröfur vegna...

Dagur kvenfélagskonunnar er í dag

01.02.2023
Fréttir
Í dag, 1. febrúar, er Dagur kvenfélagskonunnar og jafnframt stofndagur Kvenfélagasambands Íslands.  Sveitafélagið Skagafjörður sendir kvenfélagskonunum sínum í kvenfélögum innan sveitarfélagsins bestu kveðjur í tilefni dagsins með þökk fyrir ómetanleg og óeigingjörn störf í gegnum árin. Kvenfélagasamband Íslands (KÍ) var stofnað 1. febrúar...

Sundlaugar í Skagafirði lokaðar hluta dags mánudaginn 30. janúar

28.01.2023
Fréttir
Sundlaugarnar í Skagafirði verða lokaðar n.k. mánudag, 30. janúar, milli kl. 10-14, vegna starfsdags starfsmanna.

Kristvina Gísladóttir ráðin aðstoðarskólastjóri Varmahlíðarskóla

27.01.2023
Fréttir
Kristvina Gísladóttir hefur verið ráðin aðstoðarskólastjóri Varmahlíðarskóla og mun hún taka við starfinu í febrúar. Alls bárust fimm umsóknir um starfið. Kristvina hefur starfað í Varmahlíðarskóla undanfarin 20 ár. Kristvina þekkir starf aðstoðarskólastjóra einkar vel, þar sem hún sinnti starfi aðstoðarskólastjóra Varmahlíðarskóla á árunum 2008...

Sundlaugin í Varmahlíð lokuð vegna viðhalds

26.01.2023
Fréttir
Sundlaugin í Varmahlíð verður lokuð næstu daga vegna viðhaldsvinnu. Heiti potturinn og gufan verða opin á meðan á viðhaldi stendur. Stefnt er að opnun laugar seinnipart n.k. mánudag, 30. janúar.

Tilkynning til notenda Varmahlíðarveitu

24.01.2023
Fréttir
Notendur Varmahlíðarveitu athugið: Á morgun 25. janúar verður unnið í dælustöð hitaveitu í Varmahlíð frá klukkan 10. Það mun hafa í för með sér að heitavatnslaust verður hjá öllum notendum sem fá heitt vatn frá Varmahlíð, að Blönduhlíð undanskilinni, en þar munu verða einhverjar truflanir. Ekki er hægt að segja til um hversu lengi verður...

Aðsóknartölur sundlauganna í Skagafirði 2022

24.01.2023
Fréttir
Aðsóknartölur sundlauganna í Skagafirði voru með ágætum á síðasta ári þar sem gestafjöldinn var rétt um 88 þúsund, sem er aukning um 1,5% milli ára. Lítilsháttar aukning varð í fjölda gesta á Hofsósi (+4,5%) og í Varmahlíð (+5,1%) en örlítil fækun varð milli ára á Sauðárkróki (-3,1%), sem skýrist fyrst og fremst af lokun í byrjun júní vegna...