Skip to content  

Port

Tilkynning vegna breytinga á meðhöndlun úrgangs í Skagafirði

03.03.2023
Fréttir
Um áramót tóku gildi breytingar á lögum um meðhöndlun úrgangs á Íslandi sem hafa umtalsverð áhrif á sorphirðu um land allt. Breytingar eru einnig í vændum í Skagafirði á næstu vikum. Með lögunum er m.a. innleitt samræmt flokkunarkerfi í fjóra úrgangsflokka; pappír og pappa, plastumbúðir, lífrænan eldhúsúrgang og almennt sorp. Samhliða verður...

Reikningar vegna söfnunar og förgunar dýraleifa

22.02.2023
Fréttir
Þann 1. janúar 2023 tóku gildi ný lög er varða hringrásarhagkerfið og samkvæmt lögunum er sveitarfélögum skylt er að innheimta gjald sem næst raunkostnaði við viðkomandi þjónustu við losun sorps. Söfnun og förgun dýraleifa fellur þar undir.Fyrstu reikningar fyrir söfnun og förgun dýraleifa eru í vinnslu en álagning miðast við stærð bústofns...

Tillögur að breytingum á Aðalskipulagi Skagafjarðar 2020-2035

22.02.2023
Fréttir
Sveitarstjórn Skagafjarðar samþykkti þann 15. febrúar 2023 að auglýsa skipulagslýsingu verkefnisins Tillögur að breytingum á Aðalskipulagi Skagafjarðar 2020-2035, í samræmi við 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingarnar taka til íbúðarbyggðar á Sauðárkróki og Hofsósi, íþróttasvæðis hestamanna á Sauðárkróki, kirkjugarðsins á Nöfum,...

Bilun í hitaveituæð veldur rafmagnsleysi á ljósastaurum

21.02.2023
Fréttir
Í ljós hefur komið bilun í hitaveituæð í gamla bænum á Sauðárkróki sem hefur áhrif á rafmagnslögn fyrir ljósastaura. Lögnin er í sundur og þarf að draga nýjan streng í lögnina en ekki er unnt að gera það fyrr en viðgerð á hitaveituæðinni er lokið. Áætlað er að viðgerðum ljúki á föstudaginn. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að...

Lausar lóðir til úthlutunar

17.02.2023
Fréttir
Í samræmi við úthlutunarreglur sveitarfélagsins, gr. 2.3. auglýsir skipulagsnefnd Skagafjarðar 10 einbýlishúsalóðir, 2 iðnaðar- og athafnalóðir á Sauðárkróki og 1 einbýlishúsalóð í Varmahlíð lausar til úthlutunar. Auglýstar eru einbýlishúsalóðirnar nr. 2, 6, 7, 9, 10, 11, 12, 13 og 14 við Nestún og lóð nr. 1 við Melatún. Iðnaðar- og athafnalóðir...

Lausar lóðir í Skagafirði aðgengilegar á Netinu

17.02.2023
Fréttir
Nú eru lausar lóðir í Skagafirði aðgengilegar á Netinu, nánar tiltekið í Kortasjánni á heimasíðu sveitarfélagsins. Hér á eftir má sjá nákvæmar leiðbeiningar hvernig hægt er að skoða lausar lóðir í Kortasjánni. Neðst á heimasíðu sveitarfélagsins er hlekkur á Kortasjá (sjá mynd af Kortasjá). Smellt er á hlekkinn og þá kemur upp kortmynd af...

Truflanir á götulýsingu í gamla bænum á Sauðárkróki

16.02.2023
Fréttir
Um þessar mundir er unnið að uppfærslu á kerfi sem stýrir ljósastaurum í gamla bænum á Sauðárkóki og hefur borið á því undanfarna daga að slökkt er á ljósastaurum. Beðist er velvirðingar á þessum truflunum og unnið er að því að hraða verkinu eftir bestu getu.

Hvernig senda skal reikninga til sveitarfélagsins á rafrænan máta

15.02.2023
Fréttir
Af gefnu tilefni er rétt að ítreka hvernig senda skal reikninga á rafrænan hátt til sveitarfélagsins, en frá og með 1. janúar 2023 hefur eingöngu verið tekið á móti reikningum með rafrænum hætti hjá sveitarfélaginu og stofnunum þess. Reikningar skulu vera á svokölluðu XML formi og miðlað í gegnum skeytamiðlara. Ekki er tekið við PDF reikningum í...

Næsti fundur sveitarstjórnar verður haldinn miðvikudaginn 15. febrúar 2023

13.02.2023
Fréttir
Næsti fundur sveitarstjórnar verður haldinn miðvikudaginn 15. febrúar 2023 að Sæmundargötu 7 og hefst hann kl. 16:15