Atvinnulífssýning Skagafjarðar var haldin um helgina í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Yfir 60 sýnendur voru á sýningunni og gafst þeim sem heimsóttu sýninguna tækifæri á að kynnast því fjölbreytta framboði sem fyrirtæki og félagasamtök í Skagafirði bjóða uppá. Þema sýningarinnar í ár var „Fögnum fjölbreytileikanum“ en Skagafjörður hefur gert samning við Samstökin 78“ um hinsegin fræðslu í skólum sveitarfélagsins.
Við vekjum athygli á því að atvinnulífssýning er hafin í íþróttahúsinu á Sauðárkróki og mun standa yfir um helgina. Sýningin er opin í dag til kl. 17 og á morgun frá kl. 10-16.
Hægt er að nálgast gólfplanið og upplýsingar um sýnendur hér.
Á meðan á sýningu stendur fer einnig fram dagskrá á sviði.
Dagskrá á sviði laugardag:
kl. 11 - Setning...
Umhverfisdagar Skagafjarðar verða haldnir dagana 20. - 27. maí nk. Íbúar, fyrirtæki og félagasamtök í Skagafirði eru hvött til að taka höndum saman, tína rusl, taka til og fegra í sínu nærumhverfi. Áhersla lögð á hreinsun hjá fyrirtækjum í dreifbýli og þéttbýli og gámasvæði í þéttbýli.
Í gróðurhúsi sveitarfélagsins í Sauðármýri eru ræktuð...
Eins og áður hefur verið tilkynnt verður Atvinnulífssýning haldin á Sauðárkróki um næstu helgi, dagana 20.-21. maí 2023.
Atvinnulífssýningin verður sett í íþróttahúsinu á Sauðárkróki laugardaginn 20. maí kl. 11. Sýningin stendur yfir laugardag og sunnudag og verður opin frá kl. 10-17 á laugardag og 10-16 á sunnudag. Á sýningartíma verður...
Sveitarstjórn Skagafjarðar samþykkti á 13. fundi sínum þann 10. maí 2023 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir Hraun í Fljótum skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan er sett fram á uppdrætti og greinargerð dagsett 25. apríl 2023 og er unnin af teiknistofunni Kollgátu ehf. fyrir hönd landeigenda. Skipulagssvæðið er 48 ha að...
Árskóli er 25 ára á þessu skólaári. Af því tilefni verður afmælishátíð skólans haldin þriðjudaginn 16. maí kl. 16:00-19:00 með opnu húsi. Allir árgangar verða með viðburði á sínum svæðum eða í matsal á þessum tíma. Nemendur munu sýna dans, en Logi danskennari verður á svæðinu og mun stjórna dansi eins og honum einum er lagið. Einnig verður opið...
Veiðileyfi í eigu sveitarfélagsins í Laxá í Laxárdal í fyrrum Skefilsstaðahreppi eru til sölu. Um er að ræða tvo daga 8. og 19. ágúst. Veiðisvæðin eru tvö. Svæði 1 er frá ósi árinnar við Sævarland að brúnni við Skíðastaði og svæði 2 frá brúnni að Háafossi.
Skagafjörður óskar eftir tilboðum í skólaakstur í Skagafirði 2023-2028.
Helstu magntölur eru :
Akstursleiðir í dreifbýli, lengd 343,2 km pr. einfalda ferð.
Eknar eru tvær ferðir pr. skóladag.
Akstursdagar pr. skólaár eru um 175 dagar.
Um 147 farþegar í heild pr. skólaár.
Aðaleiðir eru 13 talsins, merktar x.1
Skilgreindar eru undirleiðir...